Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur verið gagnrýndur talsvert á samfélagsmiðlum eftir viðtal í Silfrinu á RÚV í morgun.
Í viðtalinu var Ásmundur Einar meðal annars spurður út í námsmenn og atvinnuleysisbætur, en stúdentar hafa margir hverjir áhyggjur af framfærslu sinni í sumar enda fá störf á lausu í ljósi kórónuveirufaraldursins. Komið hefur til tals að námsmenn fái atvinnuleysisbætur en slíkt virðist ekki koma til greina.
Í Silfrinu sagði Ásmundur Einar:
„Ég er ekki hvatamaður þess að hvorki námsmenn né aðrir á atvinnuleysisbótum fái fjármagn úr ríkissjóði fyrir að gera ekki neitt. Ég hef í rauninni áhyggjur af því að allar kröfur sem koma fram miða rosalega mikið við það að við eigum að slökkva á öllu og loka öllu, að allir vilji fá fjármagn fyrir að gera ekki neitt,“ sagði Ásmundur en þessi ummæli hafa vakið talsverða athygli.
Ragna Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, læknanemi og fyrrverandi formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, gagnrýnir Ásmund Einar á Twitter. Hún segir:
„Þessi maður fær 1.941.328 krónur á mánuði á sumrin fyrir það að gera ekki neitt. Námsmenn fá ekkert sumarfrí, framfærslu sem er langt undir lágmarkslaunum og margir nú að missa vinnuna. Hver er sá sem er að gera ekki neitt?“
Atli Þór Fanndal, fyrrverandi blaðamaður og samfélagsrýnir, gagnrýndi Ásmund Einar einnig. „Þessi maður er félagsmálaráðherra og var áðan í Silfrinu að kvarta yfir því að allir séu bara að kalla eftir peningum frá ríkinu fyrir ekki neitt. Hann var í umræðu um nemendur og atvinnuleysisbætur. Í þróuðum löndum lenda menn í vandræðum fyrir svona hroka.“
Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, varaforseti Ungra jafnaðarmanna og fyrrverandi ritari Samfylkingarinnar, segir einfaldlega: „Nei þetta er ekki hægt. Maðurinn skilur ekki tilgang atvinnuleysisbóta. Segðu af þér Ásmundur Einar.“
Jóhann Páll Jóhannsson, námsmaður og blaðamaður á Stundinni, tekur undir gagnrýnina.
„Hér í Bretlandi eru bótaþegar mjög jaðarsettir í allri stjórnmála- og fjölmiðlaumræðu, en ég held samt að enginn ráðherra kæmist upp með að tala eins og Ásmundur Einar gerði í Silfrinu í dag án þess að það yrði að stórmáli, hann lenti á forsíðum blaða og krafist yrði afsagnar.“
Mynd: Skjáskot úr Silfrinu.