„Góða fólkið í þinginu hjólaði í mig vegna þess að ég hef áhyggjur af álagi á Landspítalann,“segir Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni.
Nokkuð hefur verið rætt um þingsályktunartillögu 19 þingmanna sem varðar aðgengi einstaklinga sem ferðast til Íslands að þungunarrofi. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, gagnrýndi tillöguna harðlega í Morgunblaðinu í dag og Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði það einnig.
Ásmundur tók málið upp í umræðum um störf þingsins á Alþingi í morgun.
„ÉG hef áhyggjur af því að góða fólkið vilji flytja pólitísk heilbrigðisvandamál annarra landa til Íslands og uppskar fyrir vikið mikið af upphrópunum, skítkasti og því sem góða fólkinu er leyfilegt að segja um þá sem eru þeim ekki sammála,“ segir Ásmundur sem spyr hvort ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur þegar opna á markað fyrir hundruð þúsunda einstaklinga í leit að þjónustu sem þeim stendur ekki til boða í heimalandinu.
„Er ekki einhver í krummafót í þessu máli, ég bara spyr þjóðina? Þetta er ræðan sem allt gerði brjálað,“ segir Ásmundur en ræðu hans má sjá hér að neðan:
Virðulegi forseti. Starfsumhverfi heilbrigðisþjónustunnar er reglulega til umræðu í þinginu. Minni hlutinn í þinginu þreytist ekki á að benda á það sem betur má fara. Vissulega er margt sem betur má fara í heilbrigðiskerfinu sem nú upplifir sína erfiðustu tíma. En það eru samt 18 þingmenn sem telja að ekki sé nóg að gert í heilbrigðiskerfinu, þingmenn sem margoft hafa rætt um vandamál og mönnun í heilbrigðiskerfinu, lélega aðstöðu, of mikið álag, of lítið fjármagn, of lág laun og að þar sé allt í volli. Samt erum við að tala um eitt af bestu heilbrigðiskerfum í heimi. Þessir þingmenn munu í dag flytja þingsályktunartillögu sem felur í sér aukið álag á heilbrigðiskerfið og þó fyrst og fremst á Landspítalanum. Það er sem sagt verið að flytja þingsályktunartillögu um aðgengi fyrir konur til að ferðast til Íslands í fóstureyðingu. Þingsályktunartillagan á fyrst og fremst við íbúa í Póllandi og Möltu, en þeir eru samtals 38,2 milljónir. Fram kom fram í þættinum Heimskviður í Ríkisútvarpinu, þar sem þessi þingsályktunartillaga var til umfjöllunar, að á bilinu 100.000–200.000 ólöglegar fóstureyðingar ættu sér stað á hverju ári í Póllandi.
Virðulegi forseti. Ég velti fyrir mér, þótt ekki væri nema brot af þessum fóstureyðingum ætti að flytjast á Landspítalann, hvernig staðan verði á þungsettum spítalanum og kvennadeildinni. Ég velti líka fyrir mér kostnaðinum, virðulegur forseti: Hver á að greiða fyrir flug og gistingu? Hver greiðir fyrir viðtal, þjónustu og aðgerðirnar sem á eftir fylgir? Hver greiðir fyrir eftirfylgnina, sálfræðiaðstoðina og annað sem hér er í boði?
Virðulegi forseti. Ég spyr hvort það sé hlutverk heilbrigðiskerfisins á Íslandi að bregðast við pólitísku heilbrigðisvandamáli tugmilljóna þjóða þegar við glímum við biðlista í heilbrigðiskerfinu sem okkur dreymir öll um að eyða.
Virðulegur forseti. Er svona tillaga ekki atlaga að íslensku heilbrigðiskerfi?