Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur kallað eftir því að atvinnulausir íbúar á Suðurnesjum verði fengnir til eftirlits og aðstoðar ferðafólki á gosstöðvunum í Geldingadölum.
Ásmundur er ekki fyrstur til að varpa þessari hugmynd fram en Hringbraut sagði í gær frá hugmynd Ólafs Arnar Ólafssonar veitingamanns í svipaða veru.
Sjá einnig: Ólafur Örn varpar fram hugmynd: „Gæti ríkið kannski ráðið fólk af Suðurnesjum í þetta?“
„Vantar ekki fólk til að hjálpa fólki í kringum gosið á Reykjanesi? Er ekki mikið atvinnuleysi á svæðinu? Er mögulega hægt að láta þetta einhvern veginn passa saman? Gæti ríkið kannski ráðið fólk af Suðurnesjum í þetta? Veit svosem ekki um útfærslu, en kannski þess virði að skoða?,“ sagði Ólafur.
Ásmundur skrifar grein um málið í Morgunblaðið í dag þar sem hann bendir á að allt útlit sé fyrir að gosið í Geldingadölum standi yfir í lengri tíma, jafnvel árum saman.
„Ef það verður raunveruleikinn þarf að gera framtíðaráætlanir um gæslu á svæðinu. Ekki er hægt að láta sjálfboðaliða sem skipa björgunarsveitirnar standa vakt á svæðinu vikum og mánuðum saman. Fólk sem flest er bundið sínum atvinnurekendum og þarf að mæta til starfa, en nýtur velvildar á neyðarstund. Sú góða hugmynd að allir sem ganga á svæðið láti 1.000 kr. rakna til björgunarsveitanna ætti að vera öllum létt í hendi. Það sama gildir um lögregluna sem er bæði fáliðuð og verkefnin þar á bæ hverfa ekki. Þau kalla á allt lögregluliðið til að sinna daglegum skyldum við samfélagið en aðrir sjái um gossvæðið.“
Ásmundur bendir svo á að reynslumikið fólk sé á Suðurnesjum, til dæmis fólk sem hefur sinnt eftirlits- og skoðunarstörfum á Keflavíkurflugvelli. Flest af því tali fleira en eitt tungumál.
„Af hverju ekki að nýta krafta þessa fólks til eftirlits og aðstoðar ferðafólki á gosstöðvunum í Geldingadölum? Skipulag og stjórnun eftirlitsstarfsins getur að sönnu verið hjá lögreglu og viðbragðsaðilum en störfin sem þarf að sinna og krefjast viðveru gætu komið frá fólki sem hefur beðið eftir því að losna af atvinnuleysisskrá,“ segir hann en mesta atvinnuleysið á landinu er einmitt á Suðurnesjum.
Ásmundur telur að með því að nýta þau úrræði sem Vinnumálastofnun hefur yfir að ráða og ríkisstjórnin hefur samþykkt og fjármagnað megi skapa tugi, ef ekki hundruð starfa, á nýjum vettvangi.
„Verkefnið er frekast í höndum Grindvíkinga en í ljósi aðstæðna er eðlilegt að SSS, Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum, standi á bak við verkefnið til að koma því af stað. Hvert nýtt starf fær greitt um 450 þús. á mánuði að viðbættu orlofi eða tæpar 500 þús. frá Vinnumálastofnun. Þá má hugsa sér að einhvers konar gjaldskylda stæði undir kostnaði sem fellur til vegna verkefnisins. Ekkert er því til fyrirstöðu að það verði einkaaðilar sem sjái um þetta verkefni með stuðningi sveitarfélaga og ríkis þar til önnur fjármögnun verður ákveðin,“ segir Ásmundur sem bendir að lokum á að gjaldtaka sé eðlilega umdeild leið.
„En hver er ósammála því að þeir greiði sem njóti og standi undir þeim kostnaði sem annars félli á sveitarfélögin eða ríkið? Þá er ekkert eðlilegt við það að sjálfboðaliðar í björgunarsveitum á Suðurnesjum og víðar að af landinu standi vaktir og haldi uppi eftirliti og nýti tæki sín án nokkurrar greiðslu þegar til lengdar lætur. Það mikilvæga fólk á að vera klárt í önnur verkefni sem eðlilega halda áfram að koma upp og sýna sífellt fram á mikilvægi björgunarsveita og viðbragðsaðila.“
Ásmundur segir að lokum að með því að skapa tugi starfa við gæslu og eftirlitsstörf í Geldingadölum sé ráðist að atvinnuleysinu þar sem það er erfiðast og þyngst.
„Við eigum að skapa þá umgjörð um einstaka auðlind sem gosið er þannig að eftir því verði tekið og við vöndum okkur að gera vel. Þjónusta ferðafólk sem margir atvinnulausir hafa gert allan sinn starfsaldur í flugstöðinni og auka öryggi gesta á svæðinu með því að skapa ný og áhugaverð störf í náttúru Íslands og slá þannig tvær flugur í einu höggi.“