Áslaug sigurstranglegri samkvæmt veðbönkum

Talsverð spenna er vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en það hófst í morgun og stendur yfir til klukkan 18 á morgun. Þrettán frambjóðendur taka þátt í prófkjörinu, en í þeim hópi eru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson sem sækjast bæði eftir 1. sætinu.

Guðlaugur Þór leiddi lista flokksins í Reykjavík norður fyrir kosningarnar 2017 en Áslaug Arna var þá í 2. sæti.

Veðbankar gefa áhugasömum tækifæri á að veðja á allt milli himins og jarðar og hefur vefurinn Coolbet nú gefið Íslendingum færi á að veðja á sigurvegara prófkjörsins. Ef marka má stuðlana þykir Áslaug Arna líklegri sigurvegari en Guðlaugur Þór þó mjótt sé á mununum.

Stuðullinn á að Áslaug Arna verði sigurvegari prófkjörsins er 1,80 en stuðullinn á Guðlaug Þór er 1,91.

Þetta þýðir að ef 1.000 krónum er veðjað á Áslaugu Örnu getur sá hinn sami vænst þess að fá 1.800 krónur til baka fari svo að hún verði sigurvegari prófkjörsins. Hreinn gróði yrði því 800 krónur. Í tilviki Guðlaugs Þórs getur viðkomandi vænst þess að fá 1.910 krónur til baka og því 910 krónur í hreinan hagnað fari svo að hann vinni.