Ás­laug ekki séð það svartara í sex ár: Börnin ráðast á matar­pokana – „Þetta er alveg svaka­legt“

„Ég er búin að vera með þessa síðu í sex ár og ég hef aldrei séð stöðuna eins slæma og núna,“ segir Ás­laug Guð­ný Jóns­dóttir sem undan­farin ár hefur haldið úti Face­book-síðunni Matar­hjálp, neyðar­kall, jóla­að­stoð fyrir fólk sem er í þröngri fjár­hags­legri stöðu.

Ás­laug segir að hún hafi ekki orðið vör við jafn mikla á­sókn í að­stoð og nú. Orð Ás­laugar ríma á­gæt­lega við það sem fram kom á for­síðu Frétta­blaðsins í gær en þar var rætt við Vil­­borgu Odds­dóttur, fé­lags­ráð­gjafa hjá Hjálpar­­starfi kirkjunnar, sem sagði að það væri meiri að­­sókn nú en undan­farin ár. Hefur um­­­sóknum um að­­stoð fjölgað um rúm 40% á 5 mánuðum.

„Við höfum verið með skóla­­töskur fyrir þá sem eiga ekki skóla­­tösku en aðal­­­lega finnum við aukna að­­sókn í fötin. Marga vantar úlpur, yfir­­hafnir, í­­þrótta­­föt og sund­­föt,“ sagði Vil­­borg í Frétta­blaðinu. Undir þetta tók Ás­­gerður Jóna Flosa­dóttir, for­­maður Fjöl­­skyldu­hjálpar Ís­lands, sem sagði mikla að­sókn í matar­­gjafir og fatnað.

Ás­laug Guð­ný segir við Hring­braut að það sé í raun alveg brjálað að gera, en á Face­book-síðunni má sjá að Ás­laug hefur verið dug­leg við að kalla eftir að­stoð og óskað eftir til dæmis mjólk, brauði og á­leggi.

„Það er bara matur, matur, matur og það vantar föt á börnin og þetta lífs­nauð­syn­legasta,“ segir Ás­laug sem segir að að­sóknin hafi aukist nú þegar skólarnir eru að fara á fullt. Hún tekur eftir mark­tækum mun í ár í saman­burði við sama tíma á síðasta ári.

„Já, elskan mín mikið meira heldur en í fyrra.“

Ás­laug segir alls­konar hópar fólks leiti að­stoðar á síðunni; ein­staklingar sem búa einir, stærri fjöl­skyldur og ein­stæðar mæður með börn sem dæmi. Í þessum hópi séu til dæmis ein­staklingar sem hafa misst vinnuna eða eru að bíða eftir greiðslum frá Trygginga­stofnun. „Þetta er alveg svaka­legt,“ segir hún um stöðuna.

Hún bendir á að ó­tækt sé að hjálpar­sam­tök eins og Fjöl­skyldu­hjálpin og Mæðra­styrks­nefnd þurfi að loka yfir sumar­tímann vegna fjár­skorts. „Hvert á fólkið að leita? Hvað þá börnin litlu sem liggur við að gráti úr hungri þegar maður er að koma með matar­pokana. Þau ráðast á pokana. Þetta er ekkert gaman.“

Ás­laug er stjórnandi síðunnar á­samt tveimur öðrum og segist hún þakk­lát öllu því góða fólki sem vill láta gott af sér leiða.

„Fólkið á allan heiðurinn skilið, það eru að koma notuð en heil föt til mín núna fljót­lega utan að landi. Það eru úlpur, skór og fleira. Það er gott fólk þarna úti í þjóð­fé­laginu sem vill hjálpa, það er það sem er ó­metan­legt,“ segir Ás­laug.

Ás­laug er ör­yrki og býr hún með börnum sínum. Hún hefur því góðan tíma til að hjálpa fólki og gerir það með glöðu geði. „Ég sé bara ekkert eftir því. Við munum berjast á­fram, það er engin hætta á öðru.“