Áslaug Arna tekur Jeff Bezos sér til fyrirmyndar og miðar við tvær pítsur

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, ætlar að innleiða nýtt skipulag í nýja ráðuneytið. Segir hún í samtali við Innherja að verið sé að fella niður skrifstofumúra milli málefna.

„Þá gefur augaleið að það er nauðsynlegt að kerfið og ráðuneytið sé þannig uppbyggt að kerfið okkar, sem er alltof þunglamalegt á köflum, geri okkur það kleift að standa við stóru orðin,” segir hún.

Meðal þess sem hún er að innleiða er að fyrirmynd Jeff Bezos, forstjóra Amazon, og miðast við tvær pítsur:

„Ein regla sem ég held að ég geti fullyrt að sé ekki viðhöfð annars staðar í stjórnsýslunni er regla sem Jeff Besos stofnandi Amazon innleiddi í sínu fyrirtæki og ég hef ákveðið að innleiða hjá mér. Hún er sú að flestir fundir ráðuneytisins ættu eingöngu að samanstanda af jafn mörgum og geta hæglega deilt með sér tveimur pítsum. Þannig skili fundirnir mestu.“