Áslaug Arna skiptir um nafn á ráðuneytinu: „Framsækið skref“

Búið er að breyta um nafn á vís­inda-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðuneytinu. Samkvæmt tillögu Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur ráðherra heitir það nú há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðuneyti.

Áslaug segir í færslu á Facebook að henni finnist heitið endurspegla vel áherslurnar sem hún vill ná fram með því að setja þessa málaflokka saman í einu ráðuneytið.

„Breytingin á stjórnsýslunni er framsækið skref og til marks um þá möguleika sem eru til hagnýtingar hugvits, aukna fjölbreytni atvinnulífsins og fleiri spennandi og verðmæt störf í iðnaði og tæknigeirum. Það er að mínu mati besta leiðin til að styrkja samkeppnisstöðu Íslands,“ segir hún. „Með því að leiða saman í einu ráðuneyti málefni háskóla, vísinda, rannsókna, nýsköpunar, iðnaðar og hugverka skapast grundvöllur fyrir markvissari stefnumótun og stjórnsýslu á þessum sviðum með aukinn vöxt, verðmætasköpun og velsæld í samfélaginu að markmiði.“