Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, segist ekki meta árangur eftir því hversu mörg frumvörp komast í gegn um þingið. „Það er rangur mælikvarði að miðast við, þó of margir freistist til þess,“ skrifar hún í pistli í Morgunblaðinu.
Áslaug segir það mikilvægara og betra að miðast við hvort frumvörpin feli í sér framfarir, aukið frelsi, lægri álögur, afnám hindrana, séu til þess fallin að einfaldara og svo framvegis.
„Þá var Rammaáætlunin einnig samþykkt eftir níu ár af umræðum en gangi áætlanir hennar eftir munu hún bæta lífsskilyrði hér á landi verulega,“ skrifar Áslaug.
„Það var til dæmis gaman að sjá frumvarp samþykkt sem gefur brugghúsum landsins leyfi til að selja vörur sínar á framleiðslustað,“ skrifar Áslaug og bendir á að hún lagði málið fram fyrst fyrir tveimur árum, þegar hún var dómsmálaráðherra. Þetta er stærsta breyting á áfengislögum síðan bjórinn var leyfður árið 1989.
Þá bendir Áslaug einnig á að frumvarp hennar um fjarskipti hafi verið samþykkt. „Sem felur í sér virkari samkeppni, hagkvæmar fjárfestingar, aukin útbreiðsla háhraðanets og betra aðgengi notenda að fjarskiptaþjónustu á hagkvæmara verði,“ skrifar hún.
„Allt eru þetta mikilvæg mál og það er hægt að líta með stolti yfir þingveturinn í heild sinni. Nú tekur við vinna við að einfalda regluverk enn frekar, auka frelsi og gera völlinn þannig úr garð gerðan að hægt sé að spila eftir ólíkum aðstæðum hverju sinni,“ skrifar Áslaug.