Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Háskóla, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, deilir dag viðtali sínu á RÚV þar sem hún ræddi móðurmissinn en Áslaug var rétt rúmlega tvítug þega móðir hennar lést.
Í viðtalinu segist Áslaug sjálf vera með augun hennar móður sinnar og sér ekki eftir mörgu í lífinu nema þó kannski að hafa ekki nýtt tækifærið betur á meðan hún lifði til að njóta visku hennar“
Í viðtalinu svarar Áslaug tuttugu tveimur spurningum sem enginn vill svara sem er dagskrárliður í Felagsheimilinu á Rás 2. Þar viðurkenndi hún meðal annars að hafa synt nakin í sjó en greindi ekki nákvæmt frá þeim viðburði. „Þetta var bara einhver stemning sko,“ segir hún. „Ég fer í sjósund, finnst gaman að synda í sjónum í Nauthólsvík en það var ekki þar sem ég sleppti sundfötunum,“ segir Áslaug í viðtalinu.
„Vinkonur mínar segja stundum að ég sé félagslyndasti Íslendingurinn því ég er aldrei ein. Mér finnst svo gaman að fólki og það kemur út í því að eiga góða vini,“ segir Áslaug sem nýtur sín í góðra vina hópi en líka með fólkinu í vinnunni. Íþróttaálfur kveðst hún þó ekkert endilega vera þó hún hafi um hríð stefnt á frama í hestaíþróttum. „Ég var mikið að keppa og vann mikið af bikurum,“ rifjar hún upp í samtali við Friðrik Ómar og Sigurð Þorra í Félagsheimilinu á Rás 2. „Það má segja að ég sé svona hestaálfur.“
Hægt er að horfa á viðtalið við Áslaugu hér.
Í sumar svaraði ég 22 spurningum sem enginn vill svara á Rás 2 og úr varð þetta viðtal hjá þeim Friðriki Ómari og @siggigunnars á persónulegri nótunum. Það kom ýmislegt á daginn í svörunum, en hér er hægt að hlusta á viðtalið. https://t.co/60Yvj4dy1j
— Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) August 12, 2022