Ás­laug Arna segir marga geta lært af lífs­hlaupi og við­horfi Bubba Morthens

Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköpunar­ráð­herra sá loksins sýninguna Níu líf í Borgar­leik­húsinu og mælir hún hik­laust með henni.

„Ég sá loksins sýninguna Níu líf. Væntingarnar voru miklar enda stór hluti lands­manna búinn að mæla með henni. Sýningin stóð undir þeim og gott betur þar sem Bubbi leyfir ein­­stöku ein­vala leikara­liði að ber­skjalda sig takast á við lífið og því sem því fylgir að verða fyrir of­beldi, mis­­stíga sig og finnast maður ekki njóta sam­­mælis í sam­­fé­laginu. Á sama tíma verða frægur og dáður af ís­­lensku þjóðinni sem öll hefur skoðun á sér. Það geta margir lært af þessu lífs­hlaupi, við­horfi hans og sjálfs­vinnu án þess að vera alltaf sam­­mála honum. Ég hló, grét og lærði. Takk Bubbi!“ skrifar Ás­laug.