Ás­laug Arna ræður til sín nýjan að­stoðar­mann fram að ára­mótum

Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir, há­skóla-, iðnaðar og ný­sköpunar­ráð­herra, hefur ráðið Hrein Lofts­son sem tíma­bundinn að­stoðar­mann sinn. Hreinn hleypur í skarðið í fjar­veru Ey­dísar Örnu Lín­dal sem er í fæðingar­or­lofi þar til um ára­mót.

Hreinn lauk laga­námi við Há­skóla Ís­lands árið 1983 og öðlaðist réttindi til mál­flutnings fyrir Hæsta­rétti tíu árum síðar. Hann á að baki fjöl­breyttan feril í lög­mennsku, at­vinnu­lífi, stjórn­sýslu og sem að­stoðar­maður ráð­herra í nokkrum ráðu­neytum á árunum 1985 til 1992. Hann starfaði sem lög­maður, fyrst á eigin stofu og síðar sem með­eig­andi lög­manns­stofunnar að Höfða­bakka. Hreinn sneri aftur í starf að­stoðar­manns árið 2019 er hann gerðist að­stoðar­maður dóms­mála­ráð­herra þegar Ás­laug Arna gegndi því em­bætti. Þá hefur Hreinn einnig setið í stjórnum fjöl­margra fyrir­tækja, nefnda og fé­laga auk starfa á vett­vangi stjórn­mála.

Hreinn hefur þegar hafið störf sem að­stoðar­maður Ás­laugar Örnu á­samt Ás­laugu Huldu Jóns­dóttur. Ás­laug Hulda hefur nú tekið við starfi fast­ráðins að­stoðar­manns af Magnúsi Júlíus­syni sem lét af störfum í sumar. Áður hafði Ás­laug Hulda starfað sem tíma­bundinn að­stoðar­maður í fjar­veru Ey­dísar Örnu.