Áslaug Arna með Covid-19 eins og Bjarni

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og ný­sköpunar­ráð­herra, hefur greinst með Covid-19. Áslaug Arna greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.

„Í gær fór ég einkennalaus í PCR próf vegna ríkisstjórnarfundar og fékk jákvæða niðurstöðu. Nú reynir á mig að hafa það náðugt með sjálfri mér næstu 10 daga. Ljóst er að smitin eru mörg en veikindin sem betur fer fátíðari. Ég vona að sá hópur sem ekki finnur fyrir þessum smitum fari stækkandi og á nýju ári getum við farið að horfa til eðlilegri tíma,“ segir Áslaug.

Í gær var greint frá því að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hefði greinst með Covid-19. Alls hafa því fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins greinst með Covid-19 undanfarna daga en eins og kunnugt er fóru þeir Birgir Ármannsson og Óli Björn Kárason í einangrun um jólin.

Bjarni sagði óvíst hvar hann náði sér í smitið en benti á að það hafi verið smit nálægt honum í vinnunni og í nærfjölskyldunni að undanförnu eins og hjá svo mörgum.