Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra stefnir á að komast á topp Hvannadalshnjúks um helgina. Áslaug Arna greinir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni.
„Ég stefni á að toppa Hvannadalshnúk um helgina í góðum félagsskap yfir 100 kvenna.
Markmiðið með göngunni er að safna áheitum fyrir bættum aðbúnaði einstaklinga með krabbamein og blóðsjúkdóma á nýrri lyflækningadeild Landspítalans, til að mæta betur þörfum þeirra og ástvina þeirra,“ segir Áslaug í færslunni en átakið sem um ræðir kallast Lífskraftur.
„Sirrý er konan á bakvið þetta stóra verkefni en hún hefur tekist á við baráttuna við krabbamein með einstökum hætti og hún þveraði Vatnajökul í fyrra og ég fékk að vera verndari verkefnisins,“ segir Áslaug sem birtir svo meðfylgjandi upplýsingar um hvernig er hægt að leggja verkefninu lið:
„Hægt er að styðja við það með því að senda SMS í númerið 1900 með textanum: LIF1000, LIF2000, LIF5000 eða LIF10000 eftir upphæð. Einnig er hægt að styðja við Lífskraft með því að leggja inn á reikning 1161-26-9900, kt. 501219-0290 eða með AUR appinu í númerið 7894010. Búið er að skipta hópnum niður í sóttvarnarhólf og verður farið að öllu með gát.“
Ég stefni á að toppa Hvannadalshnúk um helgina í góðum félagsskap yfir 100 kvenna. Markmiðið með göngunni er að safna...
Posted by Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir on Miðvikudagur, 28. apríl 2021