„Áslaug Arna, ertu að grínast?“

Uppreisn, ungliðahreyfing Viðreisnar, fordæmir þá ákvörðun Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra að fela Jóni Steinari Gunnlaugssyni, hæstaréttarlögmanni og fyrrverandi dómara í Hæstarétti, að skoða úrbætur í meðferð sakamála.

Fréttablaðið greinir frá því í dag að Jón Steinar eigi að aðstoða við vinnu dómsmálaráðuneytisins um aðstoð við vinnu þess að styttingu málsmeðferðartíma í refsivörslukerfinu. Er honum falið að taka saman upplýsingar um málsmeðferðartíma í einstökum brotaflokkum, eiga samtöl við lögmenn sem eru vanir meðferð sakamála, í samráði við Lögmannafélag Íslands, í því skyni að safna saman hugmyndum og tillögum um hvernig bæta með skilvirkni réttarvörslukerfisins og taka saman tillögur um úrbætur.

Í tilkynningu sem birtist á Facebook-síðu Uppreisnar segir meðal annars:

„Áslaug Arna ertu að grínast? Dómsmálaráðherra hefur falið Jóni Steinari að skoða úrbætur í meðferð sakamála, manni sem hefur ítrekað grafið undan trúverðugleika brotaþola kynferðisofbeldis, haldið því fram að brotaþolar eigi að fyrirgefa ofbeldismönnum sínum og barist ötullega fyrir því að dæmdur barnaníðingur fengi uppreist æru.“

Bent er á að í gær hafi verið greint frá því að níu konur hefðu kært íslenska ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna vankanta á kerfinu þegar kemur að kynbundnu ofbeldi. Strax í kjölfarið sé greint frá því að Jón Steinar eigi að fara yfir kerfið.

„Þetta vekur ekki upp traust um að úrbætur á kerfinu verði gerðar með fórnarlömb kynbundins ofbeldis í huga. Uppreisn fordæmir þessa ákvörðun.“

Áslaug Arna ertu að grínast? Dómsmálaráðherra hefur falið Jóni Steinari að skoða úrbætur í meðferð sakamála, manni sem...

Posted by Uppreisn: Ungliðahreyfing Viðreisnar on Þriðjudagur, 9. mars 2021