Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, er virk á samfélagsmiðlum og í gær birti hún á Instagram nokkra fróðleiksmola um sig sem ekki eru á allra vitorði.
Um var að ræða áskorun sem Áslaug skoraðist ekki undan en í molunum má meðal annars lesa um slys sem varð þegar Áslaug var barn og varð til þess að hún missti framan af fingri. Þá kveðst hún hafa sofnað undir stýri og velt bíl. Hér að neðan má sjá molana sem Áslaug Arna birti:
- Ég æfði handbolta í Fram og var hræðileg
- Ég missti framan af litla fingri þegar ég var 3 ára og hurð var lokað á puttann.
- Ég hætti að drekka gos þegar ég var 9 ára.
- Ég hef sofnað undir stýri og velt bíl.
- Ég borða allan mat.
- Ég er með 4 stig á þverflautu.
- Var með -5.75 gleraugu áður en ég fór í leiser.
- Ég var kölluð Áslaug poki útaf bíómynd sem bróðir minn gerði í Verzló og hét Pokinn.
Fréttablaðið/Skjáskot af Instagram