Áskell Þórisson, blaðamaður og ljósmyndari, er þess heiðurs aðnjótandi að vera sonur Dóru Ólafsdóttur sem hefur nú náð hærri aldri en nokkur annar hér á landi. Dóra sló metið í gær þegar hún varð 109 ára og 161 dags gömul. Fyrra metið átti Jensína Andrésdóttir sem varð 109 ára og 159 daga gömul.
Fréttablaðið ræddi við Áskel í tilefni tímamótanna en hann segir það bæði skemmtilegt og á sama tíma dálítið skelfilegt að eiga elstu mömmu á Íslandi.
„Það er skemmtilegt að eiga móður sem er þetta ern, svo er það aftur hitt. Að ef þetta er genetískt þá sér maður fram á eitthvað svipað og það er dálítið skelfilegt,“ segir Áskell í Fréttablaðinu og bætir við:
„Þegar maður er orðinn svona gamall er maður búinn að tapa flestum sem maður þekkti, vinirnir farnir og svo framvegis,“ segir Áskell.
Áskell, sem verður sjálfur sjötugur eftir eitt og hálft ár, segir móður sína þó líkamlega mjög vel á sig komna, hún sé þó farin að tapa bæði heyrn og sjón vegna aldurs.
„Hún fór fyrir stuttu í rannsókn hjá Íslenskri erfðagreiningu þar sem kom í ljós að hjartað í henni er eins og í unglingi. Þetta er með ólíkindum,“ segir hann.
Nánar um málið í Fréttablaðinu.