Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, á vart til orð til að lýsa þakklæti sínu til Kaupfélags Skagfirðinga sem staðið hefur dyggilega við bakið á Fjölskylduhjálpinni undanfarin misseri.
Ásgerður Jóna skrifar um þetta í pistli sem birtist í Morgunblaðinu í dag en þar bendir hún á að Kaupfélag Skagfirðinga hafi styrkt matarúthlutanir Fjölskylduhjálparinnar allan nóvember og desembermánuð 2020 og febrúar og mars 2021 að verðmæti hátt í 100 milljónir króna.
„Stuðningurinn var ótrúlegur og hver matarúthlutun gríðarlega vegleg til þeirra fjölmörgu hópa sem eiga um sárt að binda. Matarúthlutanir fara fram á tveimur starfsstöðvum FÍ og var met slegið í afkastagetu sjálfboðaliða,“ segir Ásgerður en Fjölskylduhjálpin starfar í Reykjavík og í Reykjanesbæ.
„Við vorum með 20 úthlutunardaga í hverjum mánuði á þessu fjögra mánaða tímabili. Kaupfélag Skagfirðinga sá alfarið um að koma öllum matvælum til okkar í Iðufellið í Reykjavík og Baldursgötu í Reykjanesbæ,“ segir Ásgerður sem lýsir djúpu þakklæti.
„Mörgum skjólstæðingum okkar vöknaði um augu þegar réttir voru fram 6 til 8 haldapokar af matvælum við hverja afgreiðslu. Um var að ræða fyrsta flokks gæðamatvæli og næringarrík frá Kaupfélagi Skagfirðinga og fyrirtækjum tengdum því. Matargjafirnar innihéldu 4 til 5 veglegar máltíðir af lúxusvörum. Þannig fengu 2.400 heimili aðstoð í hverjum mánuði með hjálp Kaupfélags Skagfirðinga. Við afgreiddum 2.400 heimili í hverjum mánuði og að baki þessum heimilum voru hátt í 6.600 einstaklingar. Þessa fjóra mánuði afgreiddum við mataraðstoð til 9.600 heimila. Hvert heimili gat sótt um aðstoð einu sinni í mánuði.“
Ásgerður segir að aukningin hafi verið 100% og allir mánuðir orðnir eins og desembermánuður. Ásgerður kemur svo inn á starfið í því COVID-19 ástandi sem hefur ríkt undanfarin misseri. Fjölskylduhjálpin hefur getað starfað allt tímabilið og hefur enginn smitast í þeirra hópi. Ásgerður segir að mikil þörf sé á mataraðstoð til heimilanna í landinu.
„Til að anna þessu starfi þurfum við mikinn mannafla, einstaklinga á öllum aldri. Við erum svo heppin að hafa hátt í 50 sjálfboðaliða sem sumir hverjir hafa verið með okkur sl. 18 ár af mikilli hugsjón. Þessa nefndu mánuði hefur álagið verið gríðarlega mikið. Opið er á báðum starfsstöðvum alla virka daga vikunnar frá kl. 13 til 17/18 og símsvörun á öllum tímum og alla daga ársins. Við tökum á móti notuðum fatnaði alla virka daga á báðum starfsstöðvum.“