Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, segir að þörfin fyrir matargjafir um þessar mundir sé sorglega mikil. Á sjötta hundrað fjölskyldna og einstaklinga hafa sótt um matargjafir þessa vikuna þegar staðan var tekin í gær, þann 14. september.
Að sögn Ásgerðar eru 1.450 einstaklingar og börn að baki þessum umsóknum, en opnað var fyrir skráningu fyrir matargjafir á fimmtudaginn í síðustu viku fyrir stór Reykjavíkursvæðið: Reykjavík, Kópavog, Hafnarfjörð, Garðabæ, Álftanes, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi.
Nú sækja einstaklingar um á netinu, fjolskylduhjalp.is og fá síðan smáskilaboð hvað dag og klukkan hvað viðkomandi getur sótt sína matargjöf.
„Við munum vera alla þessa viku og byrjun þeirrar næstu að afgreiða allar beiðnirnar vegna Covid-19,“ segir Ásgerður í tilkynningu sem send var fjölmiðlum.
Fjölskylduhjálpin hefur haft í nógu að snúast að undanförnu. Þannig voru afhentar matargjafir til 1.990 heimila frá 15. mars síðastliðnum til 1. júlí. Fjöldinn að baki þessum umsóknum voru 3.446 einstaklingar.
Fjölskylduhjálp Íslands á Reykjanesbæ afgreiddi matargjafir til 888 heimila frá 15 apríl til 1. júlí 2020. Matargjafir í júlí og ágúst voru 700 talsins og einstaklingarnir að baki þeim voru 1.918, þar af voru 412 börn.