Ásgeir stígur fram sem BDSM-hneigður: „Ég hef þjáðst í hljóði nógu lengi - Ekki meir“

Mikil umræða hefur verið um BDSM síðustu daga og hefur það sjónarmið verið viðrað að slíkt sé einfaldlega ofbeldi og eigi ekki að kenna sem hluti af kynfræðslu í skólum. Stór hópur BDSM-hneigðra Íslendinga hefur mótmælt þessu og hafa margir með þessa kynhneigð stigið fram, margir með miklum trega þar sem það óttast fordóma.

Ásgeir Ásgeirsson ljósmyndari er einn þeirra en hann birti langa færslu á Facebook í dag þar sem hann segist hafa verið inni í skápnum í 30 ár.

„Ef ég hefði ekki haft samtökin BDSM á Íslandi til að leita til á 18. aldursári, væri þetta sennilega ekki skrifað þar sem ég sá engan tilgang með að lifa,“ segir hann og rifjar upp sárar minningar af misnotkun á yngri árum.

Lenti hann í þremur brotum, eitt þeirra 19 ára þegar honum var byrlað í miðbænum og misnotaður af fullorðnum manni með aðstoð ungs manns. „Það var ekki fyrr en áratugum síðar, þegar Jóhannes Kr blaðamaður greip manninn glóðvolgan við rannsóknarstörf sín, sem andlit gerandans rifjaðist upp fyrir mér. Um var að ræða dæmdan barnaníðing.“

Íhugaði hann svo að taka eigið líf eftir að hafa verið nauðgað af konu með meiri líkamsyfirburði en hann.

Forðaðist hann að taka þátt í umræðum ef BDSM bar á góma. „Til dæmis, þegar Guðmundur í Byrginu var tekinn við að misnota stúlkur á fullu, þá hálfpartinn dó ég innan í mér. Þarna var maður á ferð sem misnotaði stúlkur sem voru á sínu versta tímabili og notaði nafn BDSM við það,“ segir Ásgeir.

„Ég var hreinlega orðinn logandi hræddur um að ef fólk kæmist að því að ég væri BDSM hneigður, þá yrði ég stimplaður og síðan útskúfaður sem einhver viðbjóður.“

Hann íhugaði oftar en einu sinni að enda líf sitt. „Ég skammaðist mín svo eftir þetta allt að ég reyndi einu sinni að fyrirfara mér með því að skera mig,“ segir hann.

„Síðan þá hef ég alltaf talið mig einskins virði. Ég hef haft nánast ekkert sjálfsálit, vantreysti sjálfum mér með yfirleitt allt nema eitt, og það er BDSM, þar sem ég lagði allt í sölurnar í að læra allt sem ég gat. Það var mín leið til að vera umkringdur trausti, öryggi og samþykki, sem mér fannst mikilvægara en nokkuð annað.“

Hefur þetta haft áhrif á samband hans við konuna sína sem er ekki BDSM-hneigð, eru þau í opnu sambandi.

„Ég hef í gegnum tíðina verið virkur í BDSM senunni. Hélt á sínum tíma 2 stór partý, Freakout kallaði ég þau,“ segir hann. „Það var gleðistund og passað upp á að ekkert læki til fjölmiðla eða annað, enda vildum við bara vera í friði, ekki bara BDSM fólk, heldur einnig MSC, CD girls, trans fólk og bara hinsegin persónur af öllum gerðum, við höfum bara gaman.“

Ásgeir ætlaði sér ekki að opinbera þennan hluta lífs síns: „Það er að mínu mati óhjákvæmilegt fyrir mig en að koma út úr skápunum núna, eftir að ónefndar “femínískar” konur fóru í herferð og flokkuðu alla sem stunda BDSM og annað blætistengt kynlíf sem ofbeldisfólk og þaðan af verra.“

Ásgeir vonar að hann missi ekki vini út af þessu. „Ég skil ef þið viljið ekki þekkja mig lengur, en hjartalagið mitt hefur ekkert breyst frekar en ég. Ég er bara að koma hreint og heiðarlega fram við ykkur því mér ofbauð svo umræðan hjá ónefndum konum sem kalla sig "femínista" en virðast í raun vera konur sem hreinlega hata alla sem eru ekki sammála þeim um alla skapaða hluti.“

Ásgeir virðist feginn að hafa komið þessu frá sér:

„Ég hef þjáðst í hljóði nógu lengi. Ekki meir.“