Ásgeir Ásgeirsson ljósmyndari sem steig nýverið fram sem BDSM-heigður hefur sagt skilið við samfélagsmiðla tímabundið vegna umræðu um að BDSM sé ofbeldi.
„Ég ætla að taka mér frí frá samfélagsmiðlum tímabundið þar sem að fólk virðist frekar vilja ræða það hvað ég sé vond manneskja að vera BDSM hneigður og fleira í þeim dúr og gera lítið úr því að ég sé jafnréttissinni og þoli ekki orðið femínisti eftir að hafa heyrt svo oft gert lítið úr mér og mínum hneigðum og því sem ég hef upplifað eins og að "konur geta ekki nauðgað körlum" setninguna,“ segir hann á Facebook.
Hann vandar „góða fólkinu“ ekki kveðjurnar:
„Það sem stendur uppúr er að "góða fólkið" sér bara að ég sé BDSM hneigður ofbeldismaður og nánast túlkaður sem nauðgari af sumum þeirra samkvæmt skjáskotum sem vinkona mín sendi mér úr lokaðri grúppu þar sem hæðst var að mér en ég lofaði henni að birta ekki þessi skjáskot þar sem hún bað mig um það og ég stend við það loforð. Þið ráðið alveg hvort þið trúið því eða ekki - mér er sama.“
Hann segir að það sem standi upp úr sé að „góða fólkinu“ sé „drull“ um að hann hafi lent í þremur alvarlegum kynferðisbrotum, kynheigð hans skipti meira máli:
„Þannig að ég er farinn í frí frá samskiptamiðlunum og Rósa mun svara símanum mínum enda er ég innantómur, grátandi eftir að hafa lesið skjáskotin og líður núna eins og verstu gerð af mannveru - mannveru sem á ekki tilverurétt enda ekki af réttu kyni!“