Ásgeir Kolbeins opnar sig um hótanir sem hann fékk: „Þetta er rosaleg saga og sumir hlutir eru lyginni líkastir“

Fjölmiðla- og athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson tjáir sig um erfiðleika sem hann hefur þurft að ganga í gegnum á ferli sínum. Það gerði hann í þætinnum Einkalífið.

Þegar hann var að vinna við skemmtistaðinn Austur lenti hann í því að sumir aðilar virtust ekki standa við sína hluti.

„Samningar eru einu sinni þannig að þeir eru bara samningar. Ef þú vilt brjóta samninginn þá getur þú eyðilagt eitthvað í millitíðinni. Ef ég geri samning við þig um að kaupa bílinn þinn, svo fer ég og klessukeyri hann og þú ferð fyrir dómstóla og ætlar ekki að borga neitt. Málið er þá dæmt þér í hag en þú átt kannski engan pening til að borga mér þá er enginn að fara borga þennan bíl. Ég fór mjög illa út úr þessu.“ segir Ásgeir.

Vegna þessara mála segist hann hafa fengið hótanir, sem gerðu hann óöruggann.

„Eins og konan mín sagði, að þetta væri einhverskonar breakingpoint hjá mér sjálfum. Þetta byrjaði í rauninni þegar hún var ófrísk af stráknum okkar. Síðan þvældust inn í þetta alls konar hótanir, allt frá líkamsmeiðingum yfir í alls konar hluti. Sem gerði það að verkum að þú varst allt í einu ekki öruggur eða fannst þú ekki vera öruggur. Þetta er rosaleg saga og sumir hlutir eru lyginni líkastir.“