Ásgeir Jónsson, söngvari Baraflokksins er látinn, 59 ára að aldri eftir baráttu við illvígt krabbamein.
Ásgeir var einn nafntogaðasti rokksöngvari þjóðarinnar og orðlagður lagahöfundur með Baraflokknum sem hóf starfsemi á Akureyri um 1980.
Sveitin sendi frá sér þrjár hljóðversplötur og fjöldi laga hennar varð afar vinsæll og má þar nefna A Matter Of Time og I don´t like your style.