Ásgeir Tranberg, Eflingarmeðlimur til margra ára og fyrrverandi meðlimur í samninganefnd Eflingar, lýsir yfir miklum áhyggjum af afkomu sinni og sinna nánustu vegna yfirvofandi verkbanns Samtaka atvinnulífsins, í áhrifaríku viðtali við vef Fréttablaðsins í kvöld.
Þar kemur fram að Ásgeir hafi haft samband við blaðið í kjölfar frétta af því að Efling hyggist ekki greiða laun 20 þúsund Eflingarmeðlima í verkbanni sem Samtök atvinnulífsins greiða nú atkvæði um. Niðurstöður úr atkvæðagreiðslu SA verða ljósar á miðvikudag og tekur það gildi 2. mars næstkomandi verði það samþykkt.
Hann segist styðja Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar og hennar hugmyndafræði.
„En þegar þetta er komið út í það miklar öfgar að það er verið að neita fólki um tekjur til þess að geta lifað af, sérstaklega á þessum tíma sem við lifum núna, þar sem er óöruggt húsnæði, þar sem matarverðið er komið upp um allar hæðir og fólk er að berjast í bökkum hver mánaðarmót, þá finnst mér þetta vera komið út í öfgar, sérstaklega þegar þú segir fólki að það geti ekki fengið neinar tekjur.“
Vill greiða atkvæði um samning
Ásgeir segist tala fyrir hönd margra í Eflingu.
„Ég er bara kominn á þann stað, og ég tala örugglega fyrir hönd margra í Eflingu, að það ætti að setja þetta í hönd Eflingarfólks. Setjið atkvæðagreiðsluna í hendur fólks. Það er orðið löngu tímabært að fólk fái hækkanirnar. Þetta er komið úr böndunum. Það er betra að fólk fái eitthvað frekar en ekkert. Hvernig á fólk eiginlega að lifa þegar það fær ekki einu sinni borgað, hvorki frá verkalýðsfélaginu né vinnuveitanda sínum?“
Viðtalið við Ásgeir í heild sinni á vef Fréttablaðsins.