Ásgeir fagnar einu ári sem seðlabankastjóri: „Mér finnst gaman í vinnunni“

Ásgeir Jónsson greinir frá því á Facebook að í dag sé eitt ár síðan hann tók við stöðu seðlabankastjóra en hann hafði áður starfað sem forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands. Hann var skipaður seðlabankastjóri þann 24. júlí af forsætisráðherra en tók formlega við starfinu þann 20. ágúst 2019.

„Þessi dagur markaði mikil tímamót fyrir mig persónulega – sem nærri má geta. Og síðasta ár hefur verið einstaklega viðburðaríkt,“ segir Ásgeir í færslu sinni um málið. Hann lýsir því að Seðlabanki Íslands standi nú styrkum fótum og að bankinn hafi fengið stærra hlutverk með sameiningu við Fjármálaeftirlitið og nýjum lögum.

„Bankinn ræður ekki aðeins vöxtum – heldur hefur nú ótal önnur stýritæki til þess að tryggja stöðugleika í efnahagslífinu. Það skiptir þó höfuðmáli er að bankinn hefur nú mjög mikilvægar valdheimildir til þess tryggja fjármálastöðugleika – og aga á fjármálamarkaði – sem voru ekki áður til staðar.“

Ásgeir segir enn fremur að COVID-19 heimsfaraldurinn hafi verið „eldskírn“ fyrir sameinaðan Seðlabanka. Þrátt fyrir að faraldrinum sé ekki lokið segir Ásgeir að þau kvíði þó ekki vetrinum.

„Ég er vel minnugur ábyrgðar minnar að stýra þessari sterku stofnun – þakklátur fyrir það traust sem mér var sýnt fyrir ári síðan. Mér finnst gaman í vinnunni - og finnst það forréttindi að fá að þjóna þjóðinni í þessu hlutverki.“