Ásgeir fær mikið hrós: „Maður ársins? Hann siglir hraðbyri að þeim titli“

Óhætt er að segja að viðtal Stundarinnar við Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra hafi vakiðathygli. Ásgeir talar tæpitungulaust í viðtalinu og segir meðal annars að Íslandi sé að miklu leyti stjórnað af hagsmunahópum.

Í viðtalinu talar hann meðal annars um sjávarútvegsfyrirtækið Samherja, en fyrirtækið fer jafnan mikinn þegar spjótin beinast að því. Skemmst er að minnast Seðlabankamálsins og svo umfjöllunar Kveiks um málefni fyrirtækisins í Namibíu.

Ásgeir talar meðal annars um kæru Samherja gegn fimm starfsmönnum Seðlabankans árið 2019 í kjölfar þess að bankinn hafnaði að greiða fyrirtækinu bætur vegna Seðlabankamálsins. Málið er enn til meðferðar hjá lögreglu og segist Ásgeir ekki skilja hvers vegna málið sé enn til rannsóknar.

„Ég ótt­ast það að mörgu leyti, í svona eft­ir­lits­stofnun eins og Seðla­bank­inn er, að við lendum í því að við verðum hund­elt per­sónu­lega eins og farið var á eftir þessu starfs­fólki,“ sagði hann meðal annars.

Þá sagði hann það meiriháttar mál að lenda upp á kant við þá hagsmunahópa sem að miklu leyti stjórna Íslandi. Bætti hann við að peningastefna Seðlabankans sé velferðarstefna sem hafi það markmið að tryggja öryggi venjulegs fólks, en ekki sérhagsmunaaðila.

Ásgeir þykir hafa staðið sig einkar vel í embætti seðlabankastjóra og ríkir almenn ánægja með störf hans. Á samfélagsmiðlum hefur skapast nokkur umræða um viðtalið og hafa margir séð ástæðu til að hrósa Ásgeiri. Í þeim hópi er Illugi Jökulsson rithöfundur og samfélagsrýnir. Hann segir:

„Ég var ekki í hópi heitustu aðdáenda Ásgeirs Jónssonar hér í gamla daga. Og mér fannst ekkert skemmtilegt að hann skyldi ráðinn í Seðlabankann. En undanfarin misseri hefur læðst að mér grunur um að kannski sé hann bara ekkert að standa sig illa. Sá grunur styrkist heilmikið við lestur á löngu viðtali í Stundinni í morgun.“

Grindvíkingurinn Björn Birgisson, sem hikar ekki við að láta menn heyra það ef svo ber undir, hrósar Ásgeiri einnig.

„Loksins! Loksins! Fyrsta röddin innan úr sjálfu valdakerfinu sem bendir á hið augljósa! Í skjóli auðæfa sinna má segja að Samherji hegði sér eins og mafía. Hótanir, kærur og ógnanir á hendur öllum þeim sem voga sér að benda á eða rannsaka misfellur, svik og mútur. Fæ ekki betur séð en að Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, sé að stimpla sig inn sem fyrsti seðlabankastjóri landsins sem ekki er handbendi stjórnmálaflokks eða auðugra hagsmunaafla í landinu,“ segir Björn og bendir á að Ásgeir fari sínar leiðir með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi.

„Hann líkir Seðlabankanum við virki. Virki þjóðarinnar. Ekki auðvaldsins og spilltra stjórnmálamanna. Maður ársins? Hann siglir hraðbyri að þeim titli.“

Marínó G. Njálsson, fyrrverandi stjórnarmaður Hagsmunasamtaka heimilanna, segir að Ásgeir fái hrós dagsins, mánaðarins og ársins fyrir að segja sannleikann.

„Íslandi er að miklu leyti stjórnað af hagsmunaðilum! Hann segir, eins og margir hugsa vafalaust, það vera ótækt að "einka­fyr­ir­tæki og stórt út­gerðarfyr­ir­tæki geti farið á eft­ir rík­is- og emb­ætt­is­mönn­um eins og Sam­herji hef­ur gert". Ég tek svo sem ekki undir óþol hans með að lögreglustjórinn á Vestfjörðum vinni hægt, en get samt ekki annað en haft gaman af orðum hans: „Ég skil bara ekki hvern and­skot­ann þessi lög­reglu­stjóri þarf að rann­saka og af hverju þessu er ekki bara vísað frá.“ Bíð spenntur eftir útspili Þorsteins Más. Hann mun örugglega ekki sitja hljóður undir þessari eldmessu seðlabankastjóra.“