Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segist hafa gefið fyrirmæli til allra lögreglumanna við embættið að þeir fjarlægi allar aukamerkingar af vestum sem þeir bera við störf sín.
Mikil reiði er á samfélagsmiðlum vegna myndar sem birtist af lögreglukonu sem ber meðal annars merki sem nýnasistar hafa tekið upp. Á myndinni sem um ræðir má sjá lögreglukonu með svokallaða thin blue line-útgáfu af íslenska fánanum og grænum Vínlandsfána sem er meðal annars tengdur hægri öfgahyggju.
„Þetta hefur greinilega farið algerlega úr böndunum miðað við þær myndir sem við höfum fengið sendar í morgun, og þarna komin merki sem eru allt frá því að vera mjög umdeild og út í að vera hreinlega ósmekkleg,“ segir Ásgeir Þór í samtali við vef Fréttablaðsins.
Lögreglan hefur svarað fyrir málið á Twitter þar sem meðal annars kemur fram að lögreglan styðji ekki hatursorðræðu eða merki sem ýta undir slíkt. „Lögreglumenn eiga ekki að bera nein merki sem ekki eru viðurkennd á lögreglubúningi og hefur það þegar verið ítrekað við allt okkar starfsfólk og verður því fylgt eftir.“
Hverjar eru reglur @logreglan um svona “thin blue line” og “The Punisher” merkingar á grunni íslenska fánans? pic.twitter.com/Q3PbRtmrJr
— [email protected] (@SaevarG) October 21, 2020