Ás­dís Rán opin­berar hvernig mann hún vill

Fegurðar­drottningin Ás­dís Rán ræðir lífið og til­veruna við Frétta­blaðið í dag í ítar­legu við­tali. Þar er hún meðal annars spurð hvernig mann hún vill.

„Ein­hvern góðan og skemmti­legan sem hefur gaman af því að dekra við svona drottningu eins og mig,“ segir Ás­dís.

„Ég var alltaf með upp­skrift að drauma­prinsinum í gamla daga en það virkaði aldrei. Ég hef því lært að vera opin fyrir alls konar. Annars er ég ekkert að stressa mig yfir því að vera á lausu og finnst það bara fínt. Ég veit að hann kemur til mín á réttum tíma.“

Ás­dís segir karl­menn hrædda við sig. „Karl­menn eru hræddir við mig, konum stendur ógn af mér og það er erfitt fyrir mig að slaka á og vera ég sjálf í kringum fólk, aðal­lega vegna þess hve annað fólk er ó­öruggt í kringum mig.“

Viðtal Fréttablaðsins við Ásdísi.