Ásdís lá á sjúkrahúsi í viku vegna COVID: Ein fremsta íþróttakona landsins síðustu ár

Ás­dís Hjálms­dóttir, ein fremsta í­þrótta­kona okkar Ís­lendinga undan­farin ár, veiktist illa af CO­VID-19 og lá hún inni á sjúkra­húsi í viku vegna veikindanna. Ás­dís keppti á þremur Ólympíu­leikum og setti hún bæði Ís­lands­met í spjót­kasti og kúlu­varpi á ferli sínum sem lauk í sumar.

Ás­dís er bú­sett í Sví­þjóð en í mynd­bandi á Insta­gram-síðu sinni í gær­kvöldi varpaði hún ljósi á það hvernig það er að fá CO­VID-19. Hvatti hún fólk til að fara var­lega því ljóst sé að enginn er ó­hultur þegar veiran er annars vegar.

„Ég veit ekki hvort þið þekkið söguna mína en ég fékk CO­VID ný­lega. Mér fannst mikil­vægt að stíga fram og tala því mér finnst eins og fólk, sér­stak­lega ungt fólk sem er ekki í á­hættu­hópi, sé að van­meta þennan sjúk­dóm. Ég trúði því sjálf að ef ég fengi þetta yrði ég ein­kenna­laus, myndi kannski missa bragð- og lyktar­skyn, en ekki að ég myndi veikjast al­var­lega. Ég hafði rangt fyrir mér.“

Ás­dís telur sig hafa smitast af eigin­manni sínum fyrir tveimur vikum. Hún segir að ein­kennin til að byrja með hafi verið virki­lega slæmur höfuð­verkur og hár hiti sem erfitt var að ná niður. „Svo fór þetta að fara í lungun og eins og þið heyrið núna, þar sem ég sit, þá er ég nánast and­laus. Ég byrjaði að hósta og átti erfitt með að anda og var að lokum lögð inn á sjúkra­hús,“ segir hún í mynd­bandinu en eins og hún bendir á verður hún fljótt móð af því einu að tala.

Ás­dís bendir á að hún sé 35 ára og lík­lega eins hraust og manneskja á þeim aldri getur orðið. Eins og fram kemur hér að framan var Ás­dís ein af okkar fremstu í­þrótta­konum um margra ára skeið og þó hún hafi hætt sem at­vinnu­maður í sumar hefur hún haldið sér í góðri æfingu í haust og í vetur.

„Ég gerði allt sem ég gat til að vera eins hraust og ég gat. Ég svaf vel, æfði vel, borðaði vel. Ég trúi því að það sé ekkert sem ég hefði getað gert til að vera hraustari þegar ég fékk Co­vid, en samt fór þetta í lungun og ég var lögð inn á sjúkra­hús.“

Ás­dís hvatti fólk til að fara var­lega nú þegar jólin eru handan við hornið og bólu­efni á næsta leiti. „Hvort sem þið eruð ung eða ekki, í á­hættu­hópi eða ekki, gerið allt sem þið getið til að vernda ykkur því þetta er ekkert grín,“ sagði hún og bætti við að það væri eins og að fara í Cross­fit-tíma að fara í sturtu og þvo á sér hárið. Þá segir hún að auð­veldar at­hafnir eins og að fara út að labba með hundinn sé meira en að segja það. Púlsinn fari hátt í 130 slög á mínútu í venju­legum göngu­túr.

Ás­dís sagðist vera orðin hita­laus og á bata­vegi en viður­kenndi að langt bata­ferli væri fram undan við að vinna upp þol og byggja sig upp að nýju.