Ás­dís Jenna bráð­kvödd um helgina

Ás­dís Jenna Ást­ráðs­dóttir tákn­máls­fræðingur varð bráð­kvödd á heimili sínu í Kópa­vogi síðast­liðinn laugar­dag. Greint er frá and­láti hennar í Morgun­blaðinu í dag, en Ás­dís var fædd þann 10. janúar árið 1970 og var því 51 árs þegar hún lést.

Ás­dís var heyrnar­skert og fjöl­fötluð og notaði hún því hjóla­stól alla tíð. Hún var á­berandi í réttinda­bar­áttu fatlaðs fólks og var harð­á­kveðin í að láta fötlun sína ekki stöðva sig. Hún lauk stúdents­prófi frá MH árið 1992, stundaði nám í Dan­mörku um tíma og lauk svo BA-námi í tákn­máls­fræði frá Há­skóla Ís­lands. Þá lagði hún stund á nám í fötlunar­fræðum og síðustu ár var hún í laga­námi við Há­skólann á Bif­röst.

Eftir­lifandi eigin­maður Ás­dísar er Kevin Kristófer Oli­vers­son og eignuðust þau soninn Adam Ást­ráð sem er níu ára. Í við­tali við Morgun­blaðið árið 2012 sögðu hjónin að fólk hefði talað um að þau ættu ekki að eignast barn þar sem Ás­dís gæti ekki séð um það sjálf. Sagði hún að þeim hefði vonandi tekist að sýna fólki fram á að fatlaðir gætu vel stofnað fjöl­skyldu og séð um börn sín svo framar­lega sem þau fái að­stoð.

„Ég gefst aldrei upp. Ég er þrjósk,“ sagði Ás­dís meðal annars í við­talinu.