„Skemmst er frá því að segja að hakan á mér datt niður á bringu við þetta samtal,“ segir Ásdís Ásgeirsdóttir, pistlahöfundur og blaðamaður á Morgunblaðinu, í skemmtilegum pistli sínum í sunnudagsblaði Morgunblaðsins í gær. Þar skrifar hún um COVID-19 og ýmsar samsæriskenningar sem sprottið hafa upp.
Ásdís segir ljóst að kóvitar séu víða og alls staðar sé „fjandans“ veiran rædd fram og til baka.
„Fólk slær um sig og vitnar í fólk og greinar á netinu og sitt sýnist hverjum. Og það er ekkert skrýtið að við ræðum málin frá öllum hliðum, hlustum á sérfræðinga og myndum okkur skoðanir. Þó það nú væri. En ekki er öll vitleysan eins,“ segir Ásdís sem vísar í frétt BBC um könnun sem framkvæmd var í Bretlandi í maímánuði. Samkvæmt henni töldu 20% manna í Bretlandi að tilvist veirunnar væri gabb á einn eða annan hátt.
„Og á meðan flestir Bretar héldu sig heima í vor, flykktust þeir vantrúuðu út á götur og mótmæltu 5-G, sem átti að vera sökudólgurinn. Ráðist var á starfsfólk símabúða og kveikt var í um hundrað símamöstrum. Jafnvel er talið að Bill Gates sé heilinn á bak við þetta allt saman. Galið, ekki satt? Enn aðrir trúa því að þegar bóluefnið verði komið muni Gates nota tækifærið og sprauta í fólk litlum tölvukubbum. Þá gæti hann greinilega fylgst með ferðum allra jarðarbúa, kannski stýrt þeim á einhvern hátt?“
Þá nefnir Ásdís að um 30% Bandaríkjamanna hafi trúað því í mars að veiran væri búin til á tilraunastofu. „Af þeim eru 25% sem trúa því að hún hafi verið búin til viljandi; hinir óvart. En hverju trúum við Íslendingar,“ spyr Ásdís en hún segist hafa farið að íhuga þessi mál eftir að hún hitti mann sem var sannfærður um að veiran væri búin til á tilraunastofu í Kína, kostuð af hópi Bandaríkjamanna.
„Hann var algjörlega sannfærður, eftir að hafa lesið „lærðar“ greinar á netinu. Hann taldi ástæðuna vera til þess að lítill hópur illmenna gæti grætt á bóluefninu. Og vílaði ekki fyrir sér að setja allan heiminn á hliðina til þess að græða. Sjálfur var maðurinn ekki hræddur um að smitast þar sem hann tæki seleníum og C-vítamín, og lyfjablöndu sem hann blandaði sjálfur heima. Skothelt gegn veirunni! Skemmst er frá því að segja að hakan á mér datt niður á bringu við þetta samtal. Ég spurði manninn hvort hann tryði því þá kannski líka að Bandaríkjamenn hefðu sjálfir sprengt Tvíburaturnana. Ég hefði svo sem getað giskað á svarið hans. „Það er alveg klárt mál!““
Þó að eflaust sé hægt að brosa út í annað þegar svona frásögn er lesin bendir Ásdís í pistli sínum á alvöru málsins. „Því fleiri sem trúa ekki á tilvist veirunnar, eða telja sig sjálfa hólpna, því meiri hætta er á að við hin smitumst.“