Ása Ninna segir Árna drulla á sig - Vill frekar ná sér „í kjeddlingu“ á Filippseyjum

Árni Stefán Árnason dýra­rétt­­ar­lög­fræð­ing­­ur er ekki par hrifinn af stefnumótaþættinum Fyrsta blikið á Stöð 2. Þáttunum er stýrt af stefnumótagúrúnum Ásu Ninnu Pétursdóttur sem auglýsir nú eftir karlmönnum yfir 35 ára.

Árni Stefán, sem er einhleypur, vandar Ásu Ninnu ekki kveðjurnar á Facebook:

„Þessi pörunardama áttar sig ekki á vissum staðreyndum eldri manna eins og jafnaldra minna.“ Árni segir að hann sé ekki einn. „Við erum amk fjórir vinirnir á svipuðum aldri sem erum löngu búnir að missa áhugann á kvk íslenskum jafnöldrum okkar. Steiktin í topp stykkinu þeirra er orðin svo mikil að það er ekki orku eyðandi í svona trip með þeim. Þess vegna sækjum við allir í talsvert yngri dömur.“

Árni segir að vandinn sé sá að konur sem eru 15-20 árum yngri en hann vilji ekki eldri menn. „Því erum við lok lok og læs nema t.d. að fara til Filipseyja að ná okkur í kjeddlingu. Þar er þankagangur kvenna í þessum allt annar og eiginlega líka merkilegri heldur en á meðal íslenskra kynsystra þeirra.“

Sjálfur segir Árni að vinur hans hafi hvatt sig til að sækja um. „Mér fannst úrvalið af konum úr stikklum fyrstu þáttaraðir alveg hræðilegt ef ég á að segja eins og er. Þetta þrennt sem þarf að smella hjá pari til að gera það að alvöru pari er langsótt í svona skemmtiþætti. Kynþokkafull, besti vinur og lover.“

Ása Ninna tók eftir skrifum Árna og hefur samið um hann lag sem hún birtir á Twitter: