„Þegar maður var upp á sitt versta, þá var það bara brjóst, rass, andlit, svo ætla ég að kynnast þér,” segir Aron Már Ólafsson, einnig þekktur sem Aron Mola, í nýjsta hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar.
Aron er einn efnilegasti leikari þjóðarinnar og þá hefur hann látið á sér bera á samfélagsmiðlum undanfarin misseri. Í podcasti Sölva talar Aron meðal annars um áföllin sem hann lenti í sem ungur maður og hvernig hann vann sig út úr þeim. Þá ræðir Aron um klámnotkunina á hans yngri árum en hún var farin að hafa óæskileg áhrif á líf hans og brenglaði samskipti hans við hitt kynið.
Í viðtalinu ræða bæði Sölvi og Aron um þá skömm sem fylgir klámnotkun hjá karlmönnum og hvernig þeir þekkja það báðir að nota klám sem leið til að flýja raunveruleikann þegar vanlíðan sækir á.
„Ég var ekkert að horfa á einhvern í trúboðastellingunni…og ég fann bara rosalegan mun á mér eftir að ég hætti þessu” segir Aron sem sótti sífellt í verra og verra klám. Það hafi gert honum gott eitt að láta af klámnotkun.
Aron ræðir leiklistina einnig í þættinum, en hann sló í gegn í Ófærð og kveðst vera að upplifa draum sinn í þeim verkefnum sem hann hefur fengið að taka þátt í á undanförnum árum. Þá ræðir hann um systurmissinn, samfélagsmiðlana, leiklistina, upplifanir hans í Suður-Ameríku og margt fleira.
Hægt er að sjá viðtalið hér á YouTube.
Hér má nálgast það á Spotify.