Aron Már Ólafsson, einnig þekktur sem Aron Mola, á það til að gera hlutina á öfgafullan hátt þegar hann bítur eitthvað í sig. Aron er í viðtali í nýjasta hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar þar sem hann talar um upphafið á leiklistarferlinum og hans fyrsta hlutverk á sviði sem boxarinn Leroy í Bugsy Malone.
,,Ég var alveg að kúka í buxurnar allt ferli … þegar ég fæ hlutverkið þá eru bara dansarastrákar og fimleikastrákar sem eru í þessu og ég bara að borða hamborgara og var hættur í íþróttum,“ segir Aron meðal annars í viðtalinu.
Sjá einnig: Aron um klámið: „Fann rosalegan mun eftir að ég hætti þessu“
Hann lýsir því síðan hvað hann gerði í kjölfarið eftir að hafa hitt einkaþjálfara sem sagði honum að skera út kolvetni. Aron tók það bókstaflega og tók út öll kolvetni og hálfsvelti sig, án þess að hafa aðlagað sig neitt frá því að borða mikið og óhollt.
„Ég kem heim einhvern tímann eftir æfingu og dett niður í sófann og það líður yfir mig. Svo fer ég á klósettið og skít blóði…og svo fer ég á sjúkrahús, þar sem mér er sagt að ég sé með bullandi næringarskort,” segir Aron meðal annars en á einum mánuði hafði hann misst 13 kíló, hvorki meira né minna.
Hann segir þetta tímabil vera til marks um þær öfgar sem hann eigi til þegar hann bítur eitthvað í sig. Í viðtalinu segist Aron elska að starfa við leiklistina og sér ekki fram á annað en að hann muni halda því áfram.
Í viðtalinu ræða Sölvi og Aron um systurmissir Arons, samfélagsmiðlana, leiklistina, upplifanir Arons í Suður-Ameríku og margt fleira.
Hægt er að sjá viðtalið hér á YouTube.
Hér má nálgast það á Spotify.