Aron Leví með 39 stiga hita beið úti í kuldanum eftir sýnatöku: „Eitthvað við þetta sem mér fannst ekki standast“

Aron Leví Beck, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, greindust með Covid-19 í gær. Hann segir frá reynslu sinni á Facebook þar sem hann setur spurningamerki við að þurfa að bíða í röð eftir PCR-prófi úti í kuldanum á meðan hann var með 39 stiga hita:

„Í gærmorgun vaknaði ég 6:30 með börnum mínum en var eitthvað óvenju lítið til í það. Klukkan 11 var ég orðinn mjög veikur. Ég tók heima próf, fékk jákvæða niðurstöðu, pantaði pcr og fékk tíma kl 13,“ segir hann.

„Þar stóð ég fyrir utan Orkuhúsið í 40 mínútur með 39 stiga hita, grár í framan, í gráum snjógalla. Það var eitthvað við þetta sem mér fannst ekki standast tímans tönn, mér var kennt að fólk sem væri með háan hita ætti að hvíla sig.“

Hann saknar þess að geta ekki tekið þátt í borgarstjórnarfundum.

Aron Leví segir að hann geti ekki staðið lengi fyrir beinverkjum, hita, höfuðverk og fleira. „Það sem er þó verst við þetta er að vera fjarri fjölskyldu en þau eru í sóttkví og á leið í pcr próf.“