Aron Einar aftur í landsliðið

Fyrrum lands­liðs­fyrir­liði ís­lenska karla­lands­liðsins í knatt­spyrnu, Aron Einar Gunnars­son snýr aftur í ís­lenska lands­liðs­hópinn undir lok mánaðarins eftir rúm­lega árs fjar­veru frá lands­liðinu eftir að á­sakanir á hendur honum um nauðgun litu dagsins ljós.

MBL greindi fyrst frá íslenskra miðla en Fréttablaðið hefur einnig heimildir fyrir því að Aron Einar verði í landsliðshópnum sem kynntur verður í hádeginu.

Ís­land mætir Venezúela í æfinga­leik á hlutlausum velli í Austurríki og Albaníu á útivelli í Þjóða­deild UEFA í lok mánaðarins.

Frétt Fréttablaðsins í heild sinni