Aron Leví Beck, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur beðið Adolf Inga Erlingsson afsökunar á viðtali sem hann veitti íþróttafréttamanninum þáverandi árið 2008.
„Ég vil nýta tækifærið og biðja Adolf Inga, fyrrum fréttamann RÚV opinberlega afsökunar á hrokafullu viðmóti mínu í viðtali sem hann tók við mig í apríl árið 2008. Afsakið hvað þetta kemur seint Adolf, ábyrgðin er öll mín,“ sagði Aron í færslu á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi.
Aron Leví var öflugur markvörður í íshokkí á sínum tíma og mikill keppnismaður, eins og meðfylgjandi myndband ber með sér. Eftir tapleik ræddi Adolf Ingi við markvörðinn unga sem var ekki beint hlátur í huga. Svaraði Aron þannig að Adolf Ingi varð bókstaflega kjaftstopp og endaði hann á að enda viðtalið býsna snögglega.
Myndbandið af þessu hefur lifað góðu lífi á YouTube undanfarin 14 ár eða svo. Aron rifjaði þetta upp á Twitter í tilefni þess að hann ákvað að snúa aftur á svellið með liði Bjarnarins í gærkvöldi.
„Það eru 13 ár liðin síðan þetta viðtal var tekið við mig. Í kvöld byrja ég í markinu gegn Birninum. Það er stutt í úrslit og ég vona að við skorum 12 mörk á markvörð Bjarnarins í kvöld líkt og gert var við mig stuttu áður en þetta viðtal var tekið,“ sagði hann.
Það eru 13 ár liðin síðan þetta viðtal var tekið við mig.
— Aron Leví Beck (@aron_beck) February 1, 2022
Í kvöld byrja ég í markinu gegn Birninum. Það er stutt í úrslit og ég vona að við skorum 12 mörk á markvörð Bjarnarins í kvöld líkt og gert var við mig stuttu áður en þetta viðtal var tekið pic.twitter.com/V0NYuNxaeQ