Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu, mætti á upplýsingafund almannavarna í fyrsta skipti í gær. Arnþrúður er í viðtali í Fréttablaðinu í dag í tilefni þess.
Eins og Hringbraut greindi frá í gær stöðvaði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn Almannavarna, Arnþrúði af á fundinum og minnsti hana á að fulltrúar fjölmiðla fengju aðeins eina spurningu hver. Spurði Arnþrúður Þórólf meðal annars út í bólusetningar, af hverju yfirvöld segðu ekki þjóðinni að hún væri að taka þátt í lyfjatilraun og hvenær fjórða sprautan kæmi.
Þórólfur svaraði því til að hann vissi ekki hvað hún væri eiginlega að meina með að vísa í lyfjatilraun.
„Þetta er ekki lyfjatilraun. Við erum að nota hér lyf sem hefur verið rannsakað til að koma í veg fyrir ákveðinn sjúkdóm, hættulegan sjúkdóm. Hér er um heimsfaraldur að ræða og ég tel að það sé búið að uppfylla allar kröfur til lyfja og bóluefna sem við getum gert í slíku ástandi.“
Arnþrúður sagði þá: „En er það þá rangt hjá heilbrigðisráðherra að þessu ljúki ekki fyrr en 2026, sem hann fullyrti við velferðarnefnd Alþingis?“
Þórólfur svaraði að bragði:
„Ég ætla ekkert að fara að ræða um eitthvað sem þú fullyrðir að einhver hafi sagt. Ég hef ekki heyrt það og ég veit það ekki. Þú verður að spyrja hann sjálfan.“
Arnþrúður ætlaði að halda áfram: „Vísindasiðanefnd…“
Greip þá Víðir fram í fyrir henni: „Arnþrúður. Við höfum ekki tíma. Eins og fram kom fyrir fundinn var bara ein spurning á mann. Takk fyrir þína spurningu Arnþrúður.“
Í Fréttablaðinu í dag segist Arnþrúður hafa fylgst vel með fundunum hingað til þó hún hafi ekki mætt í eigin persónu. Þá hafi hún með glöðu geði útvarpað fundunum beint á stöð sinni.
„Mér fannst hins vegar nauðsynlegt að koma með spurningar núna, af því að mér finnst svo mikið ósamræmi í upplýsingum,“ segir Arnþrúður og bætir við að hún sé ekkert sérlega hress með svör sóttvarnalæknis við spurningum hennar.
Er hún ósátt við að hafa ekki getað fylgt spurningunum eftir þar sem Víðir stöðvaði hana þegar hún reyndi að fylgja eftir því sem hún telur gagnrýna spurningu um bólusetningar og hvers vegna Þórólfur Guðnason hefði ákveðið að upplýsa þjóðina ekki um að hún væri að taka þátt í lyfjatilraun.
Arnþrúður er undrandi og hálf gáttuð á Þórólfi.
„Vísindasiðanefnd vísaði mér á Þórólf þegar ég spurði hvers vegna þau hefðu ekki gefið álit á þeim aðgerðum sem eru í gangi,“ segir Arnþrúður sem vísar einnig til samninga sem gerðir hafi verið um bóluefnakaup.
„Mér finnst óeðlilegt að hann hafi ekki lesið samninginn, þar sem kemur skýrt fram að um tilraun sé að ræða.“ Arnþrúður ætlar svo sannarlega að mæta á næsta upplýsingafund og sér fyrir sér að sitja fleiri fundi í framtíðinni.