Arnór vann þriggja milljón króna vinning - Daginn eftir komu önnur skilaboð

Grafíski hönnuðurinn Arnór Bogason datt í lukkupottinn en datt svo beint út úr honum.

Á Twitter greinir hann frá því að hann hafi unnið eldhúsinnréttingu og tæki að andvirði þriggja milljóna króna. Þetta var honum tilkynnt í tölvupósti.

Í dag var þessi sigur hans afturkallaður. En það var annar Arnór B sem bar sigur úr býtum.

Hann bendir þó á að hann hafi aldrei skráð sig í umræddan leik.

„Í gær fékk ég tölvupóst um að ég hefði unnið eldhúsinnréttingu og tæki að andvirði þriggja milljóna króna. Í dag fékk ég tölvupóst um að það hefðu verið gerð mistök og það var annar Arnór B. sem vann. Ég skráði mig aldrei í leikinn en þetta var smá rússíbani.“ skrifar hann á Twitter

Í frekari samskiptum á miðlinum kemur fram að það hafi verið nafni hans sem gerði mistökin og skráði rangt tölvupóstfang. Því hafi hann ekki gert frekara tilkall til vinningsins.