Arnór: Íslendingar eru glataðir viðskiptavinir – „Reglulega sleginn út af laginu“

„Ég hélt ég yrði ekki eldri þegar ég sá svellkalt dæmi um ósvífni íslenskra viðskiptavina í gær,“ segir Arnór Steinn Ívarsson, meistaranemi í blaða- og fréttamennsku, í aðsendri grein á vef Vísis.

Þar skrifar Arnór meðal annars um myndband af viðskiptavini Bónus sem vakið hefur gríðarlega athygli, en umræddur viðskiptavinur er á móti grímunotkun í verslunum og lét hann starfsmann verslunarinnar heyra það þegar hún benti honum á að grímuskylda væri í versluninni.

Sjá einnig: Trausti vildi ekki setja upp grímu í Bónus: Biður starfsfólk afsökunar en segist samt vita betur

„Það er oft sagt að síðasti hálfvitinn (eða fávitinn, ætli það fari ekki eftir því hvern þú spyrð) sé ekki enn fæddur. Reglulega fær maður áminningu um þetta í hinum og þessum formum. Sumir bjóða sig fram í embætti en aðrir kjósa að kveikja á upptökunni á símanum sínum og sýna samfélagsmiðlum í beinni útsendingu,“ segir Arnór og vísar í umrætt myndband.

Hann segir að ávallt megi setja spurningarmerki við ákvarðanir stjórnvalda hverju sinni en þarna, þar sem fullorðinn maður tekur sig til og skammar starfsfólk fyrir eitthvað sem það ræður ekki við, sé of langt gengið.

Arnór kveðst sjálfur hafa unnið við þjónustustörf af ýmsu tagi í rúm sjö ár og er hann því ýmsu vanur þegar kemur að mismunandi viðskiptavinum. Fékk yfir sig frekjuskap, skilningsleysi, dónaskap og nafnaköll svo eitthvað sé nefnt.

„Til að súmmera upp hvað Íslendingar eru upp til hópa fullkomlega glataðir viðskiptavinir þá brá mér alltaf jafn mikið þegar ég afgreiddi útlendinga, því þau buðu manni ekki bara góðan dag, heldur spurðu jafnvel hvernig maður hefði það. Ég var reglulega sleginn út af laginu af þessari kurteisi. Það var algjört einsdæmi ef Íslendingur heilsaði umfram „góðann dag“ áður en þau köstuðu á mann vandræðum sínum og bjuggust við skyndilausn,“ segir hann.

Hann segir að ef þú er ósáttur við ákvarðanir stjórnvalda í sóttvörnum hér á landi skaltu ekki fara í næstu verslun og vera með gjörning.

„Afgreiðslufólkið þar vinnur undir nógu andskoti miklu álagi fyrir. Það þarf ekki að einhver rasshaus með mikilmennskuheilkenni komi inn með yfirlýsingar og skammir.“

Pistil Arnórs má lesa í heild á vef Vísis.