Árni Helgason, bakþankahöfundur Fréttablaðsins, var staddur á bílasölu um daginn þegar hann heyrði nýtt hugtak. Árni skrifar um þetta í bakþönkum Fréttablaðsins í dag og segir að Íslendingar séu ansi snjallir að finna upp allskonar orð.
Orðið sem Árni heyrði er orðið drægnikvíði. „Þetta lýsir þeim ótta sem eigendur rafbíla finna fyrir um að ná ekki á leiðarenda. Það sem mér fannst samt aðallega athyglisvert er hvað við erum orðin flink í að orða alls konar áhyggjur okkar með fínum og gáfulegum hugtökum. Ég veit ekki hvað veldur.“
Árni veltir fyrir sér hvort það þyki virðulegra, jafnvel faglegra, að tala í hugtökum en einhverju almennu stressi og samviskubiti.
„Í stað þess að segjast vilja taka strangheiðarlega all-inclusive-sólbaðs-sullferð til Tene þá tala þessar nýju, faglegu útgáfur af okkur um aukinn ferðavilja, í bland við mikinn farsóttarleiða og mikilvægi þess að taka þátt í endurreisn ferðaþjónustunnar. Á sama tíma og maður er meðvitaður um að flugferðin er kolefnislosandi, sem eykur á loftslagskvíða og visthryggð, þá er hægt að slá á flugskömmina með kolefnisbindingu, til dæmis með því að gróðursetja tré í gegnum app, en þó verður maður að gæta að því að verða snjallsímafíkninni ekki að bráð.“
Árni nefnir annað dæmi og segir að nú þegar farið er að vora dæmist á hann að setja upp trampólín fyrir börnin.
„Í þessum anda hef ég loksins áttað mig á því að það er ekki letin í mér sem er vandamálið, ég þjáist af verulegum uppsetningarótta. Þetta blandast saman við nánast stöðuga pressu á þessum örfáu íslensku sólardögum að vera stöðugt úti við að gera eitthvað stórkostlegt og leiða hjá sér að lofthitinn er á pari við hitastig í meðalísskáp. Með öðrum orðum: Sólartengd upplifunarspenna,“ segir Árni sem virðist ekki vera í neitt sérstökum málum.
„Allt þetta hefur svo leitt til þess að ég er farinn að upplifa verulegan hugtakakvíða.“