Árni um ó­þekkta manninn í Breið­holti: „Sann­færður um að þeir gætu verið fleiri“

„Undan­farna daga hefur mér oft orðið hugsað til mannsins, sem fannst látinn í jaðri í­búða­byggðar í Reykja­vík fyrir skömmu, og enginn kunni deili á,“ segir Árni Gunnars­son, fyrr­verandi frétta­maður og ráð­herra.

Árni vísar þarna til mannsins sem fannst látinn í kjarr­lendi við Hóla­hverfi í Breið­holti í ágúst­mánuði, en talið var að maðurinn hefði legið þarna látinn svo vikum skiptir. Ekki hafði verið lýst eftir manninum og enginn virtist hafa saknað hans.

„Hann hefði eins getað fallið úr skýi, fokið yfir hafið frá fjar­lægu landi; enginn þekkti nafn hans né vissi hvaðan hann kom. Hann hafði legið þarna í marga daga og jafn­vel vikur. Engir ættingjar, engir kunningjar eða vinir höfðu saknað hans. Hann hafði bara lagst þarna niður og dáið. Lík­lega utan­garðs­maður í sam­fé­lagi, sem veitti honum enga at­hygli. Kannski hafði hann ekkert hlut­verk, ekkert verk­efni; átti ekkert nema sjálfan sig, - líf hans til­gangs­laust og dauðinn besta lausnin.“

Árni segir að fréttir um dauða mannsins hafi verið ömur­legt og sorg­legar en margar spurningar vaknað.

„Engum verður um kennt, engar á­sakanir um mis­tök vel­ferðar­sam­fé­lagsins, bara spurningar um al­gjöran ein­mana­leika, tengsla­leysi og hvort fleiri ein­staklingar séu í svipuðum sporum og þessi ó­þekkti maður. Þúsundir er­lendra starfs­manna dvelja hér á landi á hverjum tíma; sumir hlunn­farnir um rétt­mæt laun, látnir búa í ó­í­búðar­hæfu hús­næði og standa nú frammi fyrir at­vinnu­leysi. Þessir menn hafa fært þjóðinni mikinn auð með vinnu­fram­lagi sínu.“

Árni segist á Face­book-síðu sinni ekki vita hvort ó­þekkti maðurinn hafi verið úr þeirra hópi. „Ég er hins vegar sann­færður um að ó­þekktu mennirnir gætu verið fleiri og að sam­fé­lag okkar þyrfti að veita þeim, af­komu og lífi meiri at­hygli og um­hyggju.“