Árni spyr hvort fólk sé fífl: Þarft ekkert nema tölvu og bankareikning – Hlærð svo alla leið í bankann

„Það verður að binda enda á þessa þvælu,“ segir Árni Árnason vélstjóri í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Í grein sinni gerir hann raforkusölu á Íslandi að umtalsefni og vísar í auglýsingu frá raforkusala sem segir að það taki aðeins eina mínútu að skipta um raforkusala.

„Hugsum aðeins! Hvernig má það vera að það taki aðeins eina mínútu að skipta um orkusala? Hvernig má það vera að rafmagnið rofnar ekki einu sinni sekúndubrot við það að skipta um orkusala? Svarið er einfalt. Það breytist einfaldlega ekkert annað en bankareikningurinn sem peningarnir þínir sogast inn á 24 tíma á sólarhring,“ segir Árni og heldur áfram:

„Raforkan er nákvæmlega sú sama, frá sömu virkjuninni (sem við eigum) og fer um sömu lagnirnar (sem við eigum líka). Til þess að verða „orkusali“ þarf ekkert nema nettengda tölvu og bankareikning. Kröfurnar eru eingöngu fjárhagslegs eðlis, eigið fé sem svarar gömlum Range Rover og trúverðugar rekstraráætlanir. Þá geturðu farið að mjólka neytendur fyrir orkuna sem framleidd er í virkjunum í almenningseign og leidd um dreifikerfi sem neytendur eiga sjálfir, og hlegið svo alla leið í bankann að þessum vitleysingum.“

Árni segir að þetta sé draumastaða fjárgróðabrallara; að sitja við tölvuna og horfa á peningana rúlla inn dag og nótt 365 daga á ári án þess að þurfa að lyfta litla fingri.

„Best af öllu er að bora sér eins og hvert annað sníkjudýr inn í viðskipti sem almenningur kemst ekki hjá. Annar orkusali auglýsir ókeypis flutningskassa ef þú flytur viðskipti þín til hans. Hugsum aðeins. Hverjir haldið þið að borgi kassana? Þessir kassar eru léttvægir borið saman við peningana sem þessi orkusali á eftir að sjúga upp úr buddunni hjá fólki allan sólarhringinn allan ársins hring. Allt er þetta í boði Evrópusambandsins og orkupakkanna í nafni samkeppni. Hvernig í ósköpunum á það að verða neytendum til hagsbóta að bæta við algerlega óþörfum milliliðum sem liggja á sníkjunni? Hugsum aðeins. Það verður að binda enda á þessa þvælu. Einn bensínsalinn sagði forðum: „Fólk er fífl!“ Ætlum við að láta það sannast?“