Árni H. Kristjánsson sagnfræðingur segir að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri ásamt fleirum hafi framið ritstuld við ritun skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um fall sparisjóðanna sem kom út árið 2014.
Fjallað er ítarlega um málið í Fréttablaðinu í dag. Eins og kunnugt er var Ásgeir sakaður um ritstuld af rithöfundinum Bergsveini Birgissyni á dögunum. Ásgeir hefur harðneitað að hafa gerst sekur um slíkt og tók fram að hann hefði nú verið þjófkenndur í fyrsta sinn á ævinni.
Árni segir að honum hafi þótt þessi ummæli, að Ásgeir hefði aldrei verið þjófkenndur áður, skjóta skökku við. Það sé ekki rétt og þar að auki hafi það verið staðfest á sínum tíma.
Málið snýr að bók sem Árni sendi frá sér árið 2013 og ber heitið Hugsjónir, fjármál og pólitík: Saga Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis í sjötíu og sjö ár. Segir Árni í Fréttablaðinu að sagnfræðilegur hluti skýrslu rannsóknarnefndar byggi að stóru leyti á sínum rannsóknum sem birtar voru í bókinni en ekki var minnst á hana í skýrslunni.
„Um leið og ég hóf lestur hennar rak mig í rogastans því á köflum fannst mér sem ég væri að lesa upp úr eigin bók. Þá virtist mér sem grundvallarniðurstöður skýrslunnar væru kolrangar,“ segir Árni í óbirtri grein sem Fréttablaðið hefur undir höndum.
Árni greindi upphaflega frá málinu árið 2014 og var meðal annars fjallað um það í kvöldfréttum Stöðvar 2 þann 25. apríl sama ár. Um ástæður þess að hann ákvað að stíga aftur fram núna segir Árni:
„Í lok árs 2016 var ég langt kominn með greinina „Gramsað í texta“ þar sem málið er rakið og átti greinin að birtast í vorhefti Tímaritsins Sögu. Þá var mér skyndilega kippt úr leik þar sem yngsti sonur minn, Ólafur Ívar, veiktist lífshættulega. Við tók tímabil þar við foreldrarnir vorum lengi við hlið hans á sjúkrahúsum heima og erlendis. Það sem fékk mig núna til þess að rakna úr rotinu með þetta mál er svívirðileg framkoma gagnvart Bergsveini Birgissyni og að Ásgeir skuli segja að hann hafi aldrei verið þjófkenndur fyrr. Honum hefur eflaust verið órótt þegar ég fór af stað á sínum tíma en þá var allt gert til þess að þagga málið niður.“
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagðist í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins engu geta svarað um málið. „Ég kom að þessu verki í raun á lokastigum, var einn margra höfunda að skýrslunni og fékk afhent efni sem mér var sagt að væri í eigu nefndarinnar. Ég veit ekki meira um málið,“ sagði hann.
Ítarlega er fjallað um málið í Fréttablaðinu í dag.