Árni Snævarr, upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum og fréttamaður til margra ára, er allt annað en sáttur við Leifsstöð ef marka má færslu hans á Facebook.
„Leifsstöð er til algjörrar skammar. Rútur koma og fara eftir geðþótta einokunarfyrirtækisins og ekki tekur betra við þegar inn er komið. Þar ríkir algjör glundroði við innritun og ekki bara á álagstímum,“ segir Árni.
Hann deilir umfjöllun Vísis um að óánægja ríki vegna þeirra ferðamöguleika sem eru til staðar til og frá Keflavíkurflugvelli. Í fréttinni er bent á að rútuferð sé nánast eini möguleikinn fyrir þá sem ekki fara á einkabíl og rútufyrirtækjunum sé í sjálfsvald sett hve tíðar ferðir eru frá flugvellinum.
Árni er óhress með fleira á Keflavíkurflugvelli ef marka má færslu hans,
„Öryggisverðir virðast fá bónus fyrir að móðga ferðamenn og hafa í hótunum við fólk af minnsta tilefni. Isavia svarar ekki kvörtunum. (Vonandi) versta fyrirtæki landsins og er þó samkeppnin hörð,“ segir hann.