„Okkur dugir ekki fiskur dagsins og vatnsglas, heldur sjö rétta matseðillinn og sérvalin vín,“ segir Árni Helgason, lögfræðingur og pistlahöfundur, í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.
Þar skrifar Árni um neyslugleði Íslendinga og veltir fyrir sér hvort okkar eigin neyslugeggjun verði leið okkar út úr kreppunni.
„Ég sá á dögunum Facebook-status frá hóteli á landsbyggðinni um að sumarið í ár væri að þróast allt öðruvísi en til stóð. Í upphafi var búist við að þetta yrði eitt erfiðasta sumar seinni tíma, enda varla einn einasti erlendur ferðamaður á landinu. Það hafi þó heldur betur ekki orðið raunin, sumarið væri að þróast í að verða eitt það besta lengi. Ástæðan er einföld: íslenskir ferðamenn,“ segir Árni sem segir að aldrei megi vanmeta neysluæði Íslendinga í sumarfríi.
„Þótt þjóðin sé að jafnaði að reyna að svelta sig heilu og hálfu dagana, með ketó, fimm-tveir, sautján-sjö eða hvað sem allir þessir óhamingjukúrar eru kallaðir, þá halda okkur engin bönd þegar við komumst í frí. Þá er það ekki lengur hrökkbrauð og hversdagsleiki heldur standandi veisla,“ segir hann en eflaust eru einhverjir sem kannast við þetta.
Hann segir að bara það eitt að skjótast upp í sumarbústað eina helgi útheimti hamfarakaup af snakki, æðibitum, gosi, maríneruðum kótilettum, pönnukökum, sírópi og beikoni í morgunmat, grillsósum, ídýfu, nammi í stórum dunkum og öðrum lífsins lystisemdum. Segir hann að Íslendingar sem byði upp á soðna ýsu í sumarbústað yrði sennilega flæmdur burt af svæðinu og bústaðurinn í framhaldinu tekinn eignarnámi.
„Þetta er óvísindaleg fullyrðing en ég held að meðal Íslendingurinn, sem er nýbúinn að stilla á Out of office og gönnar þjóðveginn með klippikort á hótel og nýkeyptan tjaldvagn í eftirdragi, sé á við allavega fimm matgranna evrópska ferðamenn í neyslu og eyðslu. Okkur dugir ekki fiskur dagsins og vatnsglas, heldur sjö rétta matseðillinn og sérvalin vín. Við pökkum ekki nesti heldur treystum á að bensínsjoppur landsins selji okkur pulsur og kartöflusalat á okurverði,“ segir hann og endar grein sína á þessum orðum:
„Það skyldi þó vera að okkar eigin neyslugeggjun verði leiðin út úr kreppunni?“