Árni orðlaus yfir sjónvarpinu: „Íslendingum til háborinnar skammar“

Árna Gunnarssyni, fyrrverandi þingmanni og fréttamanni, var ekki skemmt yfir kvöldfréttum Sjónvarps í fyrrakvöld. Þar voru sýndar myndir af blóðtöku fylfullra mera hér á landi.

Málið hefur vakið mikla athygli og reiði margra enda dæmi um að skepnur séu beittar harðræði og illri meðferð. Árni er mjög gagnrýninn á þetta í færslu á Facebook-síðu sinni og telur að þetta geti haft afleiðingar í för með sér fyrir Ísland.

„Myndir, sem Sjónvarpið birti í kvöld, um blóðtöku fylfullra mera, er einhver mesta andstyggð, sem fyrir augu okkar hafa borið. Og allt gert til að græða peninga. Potað var í skepnurnar með battingum og járnstöngum og hundum sigað á þær. Þvílík skömm!“

Árni spyr hvernig það væri að beita hetjunum sem að þessu standa sömu meðferð.

„Þessi mynd verður ugglaust sýnd hjá dýraverndarsamtökum erlendis, Íslendingum til háborinnar skammar. Opinberar stofnanir, sem eiga að fylgjast með þessum skepnuskap, eru með öllu gagnslausar, og ekki bara á þessum vettvangi. Sama gildir um illa meðferð á eldislaxi í sjó. - Það er tímabært að kanna rekstur þessara opinberu stofnana og hvort þær fara að lögum.“

Friðrik Rafnsson, formaður Leiðsagnar – stéttarfélags leiðsögumanna, sagði í gærkvöldi að félagið hefði áhyggjur af málinu. Krefst hann þess að blóðtaka úr hryssum verði bönnuð án tafar hér á landi.

Í yfir­lýsingunni frá Leið­sögn segir að það sé hlut­verk fé­lags­manna að fræða þau sem hingað koma um ís­lenska sögu, menningu og náttúru. Ís­lenski hesturinn sé ó­rjúfan­legur hluti þess, hann hafi fylgt þjóðinni frá land­námi og gegnt mikil­vægu hlut­verki í ís­lenskri sögu og geri enn þann dag í dag.