Árni Ólafur Ásgeirsson kvikmyndaleikstjóri er látinn 49 ára að aldri. Margir hafa minnst þessa merka manns á samfélagsmiðlum eftir að greint var frá andláti hans á vef Klapptrés í gær.
Árni Óli eins og hann var gjarnan kallaður fæddist í Reykjavík árið 1972 og lauk hann námi í kvikmyndaleikstjórn frá kvikmyndaskólanum í Lodz í Póllandi árið 2001. Hann skrifaði handrit myndarinnar Maður eins og ég árið 2002 sem Jón Gnarr fór með aðalhlutverkið í. Þá gerði hann stuttmyndina Anna‘s dag árið 2003 en í henni fór danska stórleikkonan Iben Hjelje með aðalhlutverkið. Iben er einna þekktust hér á landi fyrir leik sinn í gamanþáttunum Klovn.
Hans fyrsta bíómynd í fullri lengd, Blóðbönd, var frumsýnd hér á landi árið 2006 en myndin hlaut einróma lof gagnrýnenda. Þá gerði hann myndina Brim árið 2010 og leikstýrði teiknimyndinni Lói – þú flýgur aldrei einn sem kom út árið 2018. Í umfjöllun Klapptrés kemur fram að Árni hafi nýlokið vinnslu á kvikmyndinni Wolka sem verður sýnt síðar á þessu ári.
Meðal þeirra sem minnast Árna á samfélagsmiðlum er Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar. „Blessuð sé minning hlýja, kærleiksríka og flinka Árna Óla. Heimurinn og kvikmyndaveröldin er fátækari í dag,“ sagði Helga Vala sem sendi aðstandendum Árna innilegar samúðarkveðjur. „Sjáumst í næstu paradís,“ segir hún.
Fjölmiðlamaðurinn Kristinn Hrafnsson minnist Árna einnig. „Það er varla svo að við Árni Ólafur værum nema rétt málkunnugir en hann bauð af sér góðan þokka og var hugsandi og áhugaverður. Ég horfði í morgun á síðasta þáttinn í seríu Ásgríms um kvikmyndasögu Íslands m.a. með viðtali við Árna og hugsaði einmitt hvað væri að frétta af honum. Nokkrum stundum síðar kemur svarið í þessari harmafregn. Svona ótímabært brottkall góðra manna er fullkominn óþarfi og alvarlegur ljóður á skipulaginu. Ég votta fjölskyldu og vinum samúð mína.“