„Við ætlum að sýna þegar þau hittast aftur rúmum 60 árum síðar,“ segir fréttakonan Elín Hirst í Fréttablaðinu í dag.
Elín hefur nú gert tvo hálftímalanga sjónvarpsþætti um Vöggustofumálið svokallaða ásamt kvikmyndagerðarmanninum Pétri Fjeldsted Einarssyni.
Fyrri þátturinn verður sýndur í opinni dagskrá á Hringbraut í kvöld og seinni þátturinn verður sýndur eftir viku.
„Þegar ég fór að grúska nánar í Vöggustofumálinu fann ég ýmislegt áhugavert efni um hvað fór fram þarna innandyra sem varð til þess að mig langað að fjalla meira um málið,“ segir Elín Hirst sem starfar sem fréttamaður á Fréttablaðinu og Hringbraut.
Hún segir meðal annars frá því að þau hafi haft upp á konu, Fríðu Einarsdóttur ljósmóður, sem hafði unnið á vöggustofunni sumarlangt í kringum 1960 þegar hún var 17 ára gömul. Segir Elín það hafa tekið mjög á hana að starfa við þær ströngu reglur sem giltu um umgengni við börnin. Þannig mátti lítið snerta þau og þau voru höfð í rúmunum nær allan sólarhringinn að sögn Fríðu.
„Það endaði með því að hún gafst upp og gekk út,“ segir Elín.
Að sögn Elínar var eini punkturinn fyrir Fríðu sá að hún tók ástfóstri við lítinn dreng sem var vistaður á vöggustofunni. „Við ætlum að sýna þegar þau hittast aftur rúmum 60 árum síðar,“ segir Elín í Fréttablaðinu í dag en í þættinum hittir Elín unga drenginn, Árna H. Kristjánsson, á nýjan leik.
Elín segir að í þáttunum verði mikið af nýju efni sýnt í bland við það sem áður hefur verið fjallað um.
Í þáttunum er meðal annars rætt við Viðar Eggertsson leikstjóra, Árna Kristjánsson sagnfræðing, Fríðu Einarsdóttur ljósmóður, Sæunni Kjartansdóttur sálgreini, Þorbjörgu Guðrúnu Sigurðardóttur, fóstru og fyrrverandi forstöðukonu Vöggustofunnar frá 1972-1975.
Vöggustofuþættirnir verða sýndir á Hringbraut í opinni dagskrá fimmtudagskvöldið 9. júní, sem er í kvöld, og framhaldið viku síðar, fimmtudagskvöldið 16. júní á sama tíma.