Árni leitar að bjargvætti sínum: „Blóðið flæddi um höfuðið og ég gat ekki staðið upp“

Árni Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, leitar nú á náðir Internetsins um aðstoð en hann lenti í miður skemmtilegri lífsreynslu á dögunum.

Árni var staddur skammt austan við Landspítalann á fimmtudag, eða skammt frá þar sem sjúkrabílarnir athafna sig.

„Ég hafði farið með konu mína í augnaðgerð og þar sem áætlað var að ég gæti ekki sótt hana fyrr en eftir 4-5 klukkustundir ákvað ég að fara og sinna nokkrum erindum,“ segir Árni í færslu á Facebook-síðu sinni.

Ekki vildi betur til en svo að á leiðinni út á bílastæði virðist hálkublettur hafa orðið á leið hans með þeim afleiðingum að hann fór lóðbeint á hausinn, eins og hann orðar það.

„Blóðið flæddi um höfuðið og ég gat ekki staðið upp; líklega misst meðvitund skamma stund. Þá kom hjálpsamur og vænn maður, hjálpaði mér á fætur og vildi allt fyrir mig gera. Ekki vildi ég fara inn á Landspítala til viðgerðar, heldur beint á Heilsugæsluna mína í Hamraborg í Kópavogi.“

Árni segir að þetta hafi kannski verið undarleg ákvörðun og kannski litast af umræðunni um mikið álag á starfsfólk Landspítalans. Árni kveðst þó vita að hann hefði fengið góða þjónustu.

„En yndislega starfsfólkið í Heilsugæslunni tók mér vel, saumaði nokkur spor í ennið og sendi mig svo í myndatöku,“ segir Árni sem vill vita hver maðurinn er sem kom honum til hjálpar og færa honum þakkir fyrir.