Atli Árnason heimilislæknir hvetur Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra að endurskoða frá grunni ákvarðanir um að bjóða Covid-19-bólusetningu fyrir börn á aldrinum 5 til 11 ára.
Þetta kemur fram í grein Árna í Morgunblaðinu í dag.
„Vegna einhliða opinbers málflutnings í fjölmiðlum í tengslum við fyrirhugaðar Covid-19- bólusetningar 5-11 ára barna tel ég mig, heimilislækni með áratuga starfsreynslu og mikinn áhuga á bólusetningum og smitsjúkdómum, því miður knúinn til að leggja hér orð í belg með hagsmuni barnanna að leiðarljósi,“ segir árni í grein sinni og bætir við:
„Erindið er að biðja þig um að endurskoða frá grunni ákvarðanir um að bjóða Covid-19-bólusetningu, sem sannanlega hefur lélega smitvörn gagnvart núríkjandi afbrigði Ómíkron, fyrir öll þessi börn án tillits til áhættu barnanna af því að fá Covid-19-sýkingu af afbrigðinu.“
Árni segir í grein sinni að þegar ákvörðunin um bólusetningu þessa aldurshóps var tekin hafi allt aðrar aðstæður verið uppi en eru nú og allt aðrar tölulegar staðreyndir. Ómíkron sé á góðri leið með að ryðja öðrum afbrigðum Covid-19 burt.
„Tölfræðileg gögn okkar á Íslandi eru að mínu mati sennilega betri en í flestum öðrum löndum. Hér er tekið mikið af PCR-prófum og öll jákvæð sýni ræktuð og flokkuð og greind á hraðasta hátt miðlægt með aðstoð Íslenskrar erfðagreiningar. Meginrök mín í þessu bréfi byggjast einmitt á þeim gögnum og þeirri tölfræði sem birtist á covid.is,“ segir Árni og vísar meðal annars í 14 daga nýgengi smita og þá staðreynd að Ómíkron sé orðið ríkjandi. Þá sjáist að virkni sprautanna gagnvart Ómíkron-smiti sé mjög lélegt.
„Þar sést að nýgengi smits „fullbólusettra“ fullorðinna er langhæst og hefur frá 22. nóv. til 29. des. 5,5-faldast (550%) en smit örvunarhópsins hefur á sama tíma 17-faldast (1.700%). Á sama tíma hafa „ekki fullbólusettir fullorðnir“ aðeins 1,7- faldast (70%). Sama tilhneiging gildir um „ekki fullbólusett börn“. Þetta geta allir leikir sem lærðir lesið sjálfir á covid.is og er ekki flókið og eru þá væntanlega ekki neinar „falsfréttir“,“ segir hann.
„Jafnframt er núverandi hallatala á kúrfunum, fyrir alla flokka bólusettra og óbólusettra, að stefna í mjög svipaða átt frá því Ómíkron byrjaði að koma inn af krafti í okkar tölum í byrjun desember. Nema að „fullbólusettir fullorðnir“ virðast enn þá smitast hlutfallslega mest af Ómíkron. Þetta segir að mínu mati einfaldlega að allt bendir til þess að sprauturnar hafi hverfandi verndaráhrif gegn smiti af Ómíkron. Af þessu leiðir að rök fyrir því að sprauta börn 5-11 ára með því að nota núverandi Pfizer-bóluefni til að verjast Ómíkron-smitdreifingu halda að mínu mati ekki vatni.“
Í grein sinni segir Árni einnig að þá sitji mögulega eftir rökin um að bóluefnin verji börnin vel fyrir aukaverkunum af völdum Ómíkron-smits. Hann bendir þó að munurinn á nýgengi sjúkrahúsinnlagna hjá fullbólusettum annars vegar og og svo örvuðum, fari nú hratt minnkandi. Lætur hann að því liggja að þessi minnkun gæti orsakast af aukinni útbreiðslu Ómíkron.
Árni leggur til að ráðherra fresti boði um bólusetningu barna á aldrinum 5-11 ára um 4-6 vikur.
„Ef einhverjir telja þetta bréf sérstaka árás á sig þá er ég ekki að leita að sökudólgum heldur að leita að einhverju sem hægt er að sameinast um. Við verðum að umgangast þekkingu okkar og þekkingarleysi á þessum nýja vírus af hógværð og virðingu. Þess vegna ber að fara af varfærni í allar aðgerðir og vera alltaf viss um að skapa ekki meiri skaða með þeim en annars hefði orðið.“